Arni Einarsson uppeldisfræðingur: Áfengi og árangur í íþróttum Plestir kannast sjálfsagt við 0rðtakið Áfengi og fþróttir eiga e^*i samleið". í fljótu bragði Vlrðist sannleiksgildi þess svo j^gljóst að ekki þurfi að ræða Pað frekar. Þegar íþróttamður ysir þvf yflr ag auðvitað neyti jjann ekki áfengis finnst okkur P^ð eðlilegt og skiljanlegt. Við *ulum samt aðeins líta á hvers eSna flestir bestu íþróttamenn kkar íslendinga og annarra P)óða vilja ekki neyta áfengis. "ítamín eru íþróttamannin- u°i mikilvæg. Hann þarf t.d. B- ltamín í meira magni en aðrir *!ar sem þau framleiða orku úr fitu ama íþróttamanns sem neytir | áfengis er því minni en þess sem | neytir þess ekki. f Líkaminn tapar steinefnun- | um, járni, kopar og magnesíum 2 þegar áfengis er neytt. Við það dregur úr afkastagetu en það getur reynst dýrkeypt fyrir íþróttamann sem ætlar að standa sig vel. Rannsóknir hafa sýnt að rétt vökvamagn í líkamanum er nauðsynlegt til að ná hámarks- árangri í íþróttum. 55-60% af líkamsþyngdinni er vam. Við líkamlega áreynslu tapar líkam- inn vökva sem hann verður að vinna upp því að vökvatapið dregur úr afköstum líkamans. Áfengi dregur vatn úr líkaman- um og stöðvar framieiðslu á ADH-hormóni sem stjórnar magni þess vatns sem losað er með þvagi. Við það eykst þvag- lát og tapast þá bæði vökvi og mikilvæg steinefni og vítamín. Það allt dregur úr orkufram- leiðslu líkamans. Líkaminn er nokkra daga að vinna upp vökvatap eftir áfengisdrykkju og koma jafnvægi á vítamín- og steinefnaforðann. Þreyta kemur fram miklu fyrr en ella í vöðv- um sem þjást af vatnsskorti og meiðslahætta margfaldast. Gott samstarf heila og tauga er undirstaða þess að mögulegt sé að bregðast fljótt við og hreyfa sig hratt. Við áfengis- neyslu riðlast þetta samstarf og kemur það sér mjög illa í íþróttagreinum sem krefjast við- bragðsflýtis og hraða. Áfengi tefur fyrir súrefnis- flutningi blóðsins til vöðvanna. Vöðvar, sem fá ekki nóg súr- efni, þreytast fyrr en þeir sem fá nóg af því. Sá tími, sem íþróttamaður er undir áhrifum áfengis og næstu dagar á eftir, eru honum gagns- litlir til æfinga. Hann getur hvorki notað þennan tíma til hvíldar né æfinga að nokkru gagni. Fáir íþróttamenn eru svo góðir að þeir hafi efni á að eyða mörgum dögum í að jafna sig eftir áfengisdrykkju. Það sem hér hefur verið sagt um áhrif áfengisneyslu á íþróttaiðkun er aðeins hluti af því sem íþróttafólk verður að vita. Síðar í haust kemur út bæklingur þar sem þessu eru gerð góð skil. Það er Nefnd um átak í áfengisvörnum og íþrótta- hreyfingin sem standa að útgáfu hans. Þeim sem vilja vita meira um áhrif áfengis á íþróttaiðkun er bent á að fylgjast með þegar hann kemur út og ná sér í ein- tak. B og kolvetnum. Afengi eyðir Vltamínum úr líkamanum og e'dur því einnig að líkaminn er engur að afla sér nýrra birgða af einefnum og vítamínum en ar>nars. Orkuframleiðsla í lík- ÆSKAN29