Pink Floyd Kæra Popphólfl ég hlusta mikið á Pink Floyd. Fleiri ættu oð gera þoð. r til oðdóendaklúbbur Pink Flouds? Getur þú útvegoð mér erlendon pennavin sem heldur upp ó Pink Floud? Fróðleiksmolar eru vel þegnir. Ólafur Guðnoson, Melstað. Svar: Kolruglaður myndlistarmaður, Syd (Siddi) Barrett, stofnaði Pink Floyd 1966. Með í spilinu voru þrír arkitektar, bassa.leikarinn Roger (Hróðgeir) Waters, trymbillinn Nick(Nikki) Mason og hljómborðs- leikarinn Rick (Rikki) Wright. Siddi lék á gítar,- samdi sérstæð sönglög og útsetti á framandi máta. Ásamt Soft Machine (djassrokk- sveit Róberts Wyatts) og The Egg (sem síðar breyttist £ Henry Cow) tilheyrði Pink Floyd frumkvöðla- hópi breskra tilrauna-og sýru"- rokkara. Ákafur og óbeislaður til- raunarokkstíll þessara hljómsveita var einnig kallaður neðanjarðar- rokk" og framúrstefna þó að fyrsta smáskífa Pink Floyd kæmist strax inn á breska vinsældalistann 30 efstu". Næstu smáskífur þeirra komust inn á 5 efstu". Davíð Gilmour Það var ekki einungis músík þess- ara hljómsveita sem hljómaði fram- andi heldur gerðu þær einnig út á sjónræn áhrifaatriði. Pink Floyd notaði t.a.m. milljónir sápukúlna og hundruð blóma til að ná sérstökum blæ á hljómleikum sínum. Fljótlega tóku liðsmenn Pink Floyd einnig skuggamyndasýningu upp eftir The Egg o.s.frv. 1968 var Siddi orðinn of ruglaður til að sjá einn um gítarleikinn. Hann fékk gítarkennarann sinn, Davi'ð 40ÆSKAU Pink Floyd 1966 Gilmour, til aðstoðar. Skömmu síð- ar lenti hann á hæli fyrir geðsjúka eiturlyfjaneytendur. Hann hefur þó gert nokkrar skrítnar einleiksplötur síðan með hjálp liðsmanna Soft Machine og Pink Floyd. Hróðgeir fyllti skarð Sidda sem söngvasmiður og útsetjari. Með tíð og tíma varð tilraunarokk Pink Floyd markvissara og yfirvegaðra en í fyrstu. Þeir misstu aldrei sjónar af áhrifamiklum og aðlaðandi laglín- um. Með plötunni Dark Side of the Moon" náðu Pink Floyd efsta sæti bandaríska vinsældalistans 1973. Sú plata selst enn þá það vel að hún er við og við á lista yfir 200 söluhæstu plöturnar í Bandaríkjum Norður-Ameríku. Þessar gríðarlegu vinsældir Skuggahliðar tunglsins" riðu Pink Floyd næstvun því að fullu. Liðs- menn sveitarinnar töluðust ekki við nema í illsku og fóru að vinna hver í sínu horni. Nikulás Mason fór að vinna með Róberti Wyatti úr Soft Machine og síðar stjórnaði hann upptökum hjá Gong, franskri hljómsveit stofnaðri upp úr Soft Machine. Davíð Gilmoure sneri sér einnig að upptökustjórn ásamt því að spila á gítar með Sutherlands Brothers og einnig með söngvaran- um Roy Harper (sem söng með Pink Floyd 1975 á plötunni Wish You Were Here"). Þegar liðsmönnum Pink Floyd samdi sem verst henti Róbert Wyatt sér út um glugga á 3ju hæð í eitur- lyfjavímu og lamaðist fyrir neðan mitti. Nokkrum mánuðum síðar fór hann í hjólastól út af sjúkrahúsi, andlega niðurbrotinn, bótalaus og félaus. Þetta varð til þess að liðs- menn Pink Floyds lögðu deilumál á hilluna og héldu hljómleika til fjárstuðnings Róberti. Þar með var Pink Floyd komin af stað á nýjan leik. Samkomulagið varð þó aldrei gott. Þeir hittust sjaldan, unnu plöt- urnar frekar í einrúmi hver um sig. Á köflum voru Davíð, Nikki og Ríkharður nánast eins og ókunnugir aðkeyptir hljóðfæraleikarar á ein- leiksplötu Hróðgeirs þó að plöturn- ar væru skráðar á Pink Floyd. í upphafi þessa áratugar sendi Nikki frá sér einleiksplötu (sungna af Róberti Wyatt). Síðan hefur Nikki ekki talið sig vera liðsmann Pink Floyds heldur gest á plötum hljómsveitarinnar. Davíð Gilmoure var einnig önnum kafinn við upp- tökustjórn hjá Kötu Bush og sóló- verkefni. 1987 fóru Pink Floyd í mikla hljómleikaferð án Hróðgeirs. Hann reyndi án árangurs að meina þeim notkun á Pink Floyd nafninu. Nikki hafði varla tíma til að taka þátt í leiknum vegna anna með djassrokksveit Mikjáls Mantlers og bassaleikaranum John Greaves úr Henry Cow. Hann vildi þó leggja sitt af mörkum til að Davíð og Rikki héldu Pink Floyd nafninu og fór því með í ferðina. Eins tók Nikki þátt í gerð plötunnar A Momentary Lap- se of Reason" með Pink Floyd án Hróðgeirs. Þar er reyndar annar trymbill líka nefndur sem trommu- leikari plötunnar. Og einhverra hluta vegna er nafn Ríkharðs skráð smærra letri á plötuumslagið en nöfn Davíðs og Nikulásar. Segja má að platan sé nærri því sólóplata Davíðs. Hann er skráður höfundur allra laga (að vísu í samvinnu við Anthony Moore, fyrrum söngva- smið Henry Cow o.fl.) Davíð hefur kosið að fara þá leið að stæla nákvæmlega létta hlið Pink Floyds frá tímum Hróðgeirs. Á þann hátt hefur tekist að halda vin- sældum Pink Floyds óskertum fram / á þennan dag. Eftir Pink Floyd liggja um tveir tugir platna. Dark Side of The Moon" frá 1973 og The Wall" frá 1979 eru bestar. Fictious Sports" með Nikka Mason frá 1981 er vel heppnuð. Live" með Nikka, Mi- kjáli Mantler, Jóni Greaves o.fl. er enn þá betri. Póstáritun Pink Floyds er: Pink Floyd Fan Club, Iepenlaan 4 3203 XE, Spykenisse, Holland. Það er líklegt að fréttabréf aðdá- endaklúbbsins hafi pennavinadálk. Vímulaus SBSKcl Ég er blindfullur, blindfullur, blindfullur!" syngja Stuðmenn á nokkurra ára gamalli plötu. Fjólublátt ljós við barinn" heitir annað lag sungið af Þorgeiri Ást- valdssyni á plötu með Gunnari Þórðarsyni. Flaskan mín fríð heitir þriðja lagið. Það var á plötu með Ríó. Þessi lög eru nefnd af handahófi sem dæmi uffl kæruleysislega grallaraumfjöil- un um vímuefnanotkun í is* lenskum dægurlögum. Erlendis er þessu líkt farið, nema hvað að þar er áróður gegn vímuefha- notkun jafnframt áberandi. í Bandaríkjum Norður Amer- íku hefur um nokkurra ára skeio verið á döfinni auglýsingaher- ferð undir vígorðinu Rokk geg0 vímuefnum". Forsvarsmenn her- ferðarinnar eru feðgarnir FranK Zappa, gítarhetja, tónskáld og háðfugl, og sonur hans, báru- járnsrokkarinn Dweezil ZapPa» gamli Velvet Underground garP' urinn, Lou Reed, og breski pönK- forsprakkinn úr Sex Pistols, Steve Jones. Þeir tveir síðast- nefndu eru fyrrum fíkniefna- neytendur. Stebbi Jóns sprakk reyndar nýlega á bindindinu og rýrði þar með trúverðugleika herferðarinnar. 4 Dweezil og Frank Zappa Zappa-feðgarnir hafa aftur móti aldrei fiktað með nei« vímuefni. Frank þótti upPa' tækjasamur furðufugl á hipPaa unum og spilaði með mörgu1" frægum drykkjumanninum °» fíklinum (fíkill = sá sem háður er vímuefnum=. Hann var P alla tíð áhugamaður um barátfu gegn vímuefnum. Hann leig m.a. háskólasali til að tala geg" vímuefnanotkun. Vímulaus hefur Frank náð æ lengra í músík sinni a arfjórðungslöngum hljómlista ferli en jafnaldrar hans ha' enda ald- flestir brunnið upp eins og spýtur, bæði andlega og líKa lega.