hljóðfæri? Nei, því miður. Hverjir eru eftirlætistónlistarmenn þínir? *d. Bubbi Morthens, Megas, Stuð- menn, Billy Joel. Hefurðu stundað íþróttir? Nei, ég hef ekki stundað íþróttir en fylgist dálítið með og þá helst hand- bolta. "ver eru helstu áhugamál þín - auk starfsins. . .? Lax- og silungsveiði númer 1, 2, 3 og 4. Finnst þér jafnskemmtilegt að leika fyrir börn og fullorðna? Ef eitthvað er finnst mér skemmtilegast að leika fyrir unglinga, þeir eru svo móttækilegir. Hvað heitir kona þín? Hefur hún lært leiklist eða leikið? Hún heitir Lísa og er ómögulegur leik- ari - ha, ha. Eigið þið börn? Hve gömul - hvað heita þau? Dröfn, f. 3.12. 1981 og Sigurjón, f. 18.8. 1985. Áttu gæludýr? Á hvaða dýrum hefur þú mest dálæti? Ég á kött og hef mikið dálæti á honum. Hver er eftirlætisréttur þinn? Hangikjöt með kartöflujafningi (upp- stúi) og öllu tilheyrandi. Hvert er broslegasta atvik sem þú manst eftir? Sem betur fer er lífið fullt af broslegum atvikum ef maður hefur bara augun op- Verður Spaugstofan með þátt í Sjón- varpinu í vetur? (Það er einlæg ósk margra ungra aðdá- enda. . .) Já, það stefnir allt í þá átt og gengur vonandi betur næst". . . Hvernig er besti brandari sem þú hef- ur heyrt? Það eru til margir góðir Hafnarfjarðar- brandarar, sérstaklega sá um svefntöfl- urnar. Hvað finnst þér helstu kostir fólks? Að það sé jákvætt. Kristján Ólafsson neytendafrömuöur: Typískur" (= dæmigeröur) fýlupoki. . .