Æskan

Árgangur

Æskan - 15.12.1926, Blaðsíða 20

Æskan - 15.12.1926, Blaðsíða 20
112 Æ S K A N s> mi Andante. :j=é=3=i ólavísux. (Guðm. Guðmundsson). Sjá Jálabók Æskunnar 192i. mf Steinþór Þorgrímsson. sM E 1=5=4 Nú ljóm - a jól - a - ljós - in björt, nú ljós - vef klæð-ist nótt - in svört. Það -4- I I I I i i J P J I l d J J I j i j ,i .» 44114 4 f •—p- I fcfe :í=^í 44 rT'r-r f hvíl - ir dul - ljúf helg - i T f iSf=fcE£EFEÍ á himn - i, fjöll - um, • dal ? í i J r og sjó. £ Trr'TTTrrrrTT þeir gripir, sem hann langaði mest til að eignast. Aðfangadagur jóla var kominn. Alt fólkið í Hvammi var í óða önn að búa alt undir jólin. Kvenfólkið var á hlaupum milli búrs og eldhúss. Sum- ar stúlkurnar voru að gera alt hreint, en aðrar að sjóða jólagrautinn og steikja lummur og kleinur. Jólakökuna og smá- kökurnar var búið að baka áður. Piltarnir voru úti við sín venjulegu störf, en ætluðu að koma inn í fyrra lagi til að geta haft fataskifti og þvegið sér áður en sjálf jólahelgin byrjaði, klukkan sex, og jólalesturinn yrði lesinn. Hugi og Hrefna voru á þönum um allan bæinn. Þau þurftu að lita eftir öllu og gefa gælur að öllum undirbún- ingnum og svo um leið að fá sér eina lummu eða kleinu hjá mömmu sinni í eldhúsinu. Pess á milli hlupu þau út á hlað og rendu sér nokkrar ferðir á sleðanum sinum niður hlaðvarpann. En ekki eirðu þau því til lengdar. þau gátu ekki fest sig við neitt stundinni lengur. Hrefna réði sér varla fyrir fjöri og til- hlökkun, en Hugi var ekki eins kátur. »Ertu nú búinn að brjóta það, sem þú lofaðir pabba og eitu ólundarfullur út af því að fá enga jólagjöf?« sagði Hrefna lilla einu sinni við Huga úti á hlaði um daginn. Hugi gegndi engu, en hljóp út fyrir bæ. Piltarnir komu nú inn frá útiverkun- um og fólkið fór að hafa fataskifti. All- ir fóru í sín beztu föt og allir fengu einhverja nýja spjör að fara í, svo að enginn þurfti að klæða jólaköttinn. Þegar fólkið var búið að hafa fata- skifti, las faðir barnanna lesturinn og fólkið söng jólasálmana á undan og eftir. Á meðan sátu þau Hugi og Hrefna og hlustuðu á þögul og alvörugefin. Pau skildu lílið í lestrinum, en þó var þar minst á jólabarnið góða, Jesú, sem mamma þeirra hafði sagt þeim ýmsar sögur um, og sem var svo gott barn

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.