Skírnir - 01.01.1920, Blaðsíða 79
ísland 1919.
Á. þessu ári hefir fátt gerst þeirra stórtíðinda, er skapi því
öokkra verulega sérstöðu í innra eða ytra lífi þjóðarinnar, eða
skeri það að mun úr flokki annara meðalára. Að vísu má þetta
ari eins og alt yfirstandandi tímabil yfirleitt, að ýmsu leyti teljast
tíuiamótaár hórlendis sem annarstaðar, þó ekki komi það beinlínis
fram á ytra borði sögunnar. — Ýms gömul höft og illar aðstæður
ófriðaráranna eru smámsaman að leysast og hverfa og n/tt ástand
að skapast í þess stað. Og n/r skriður hefir komið á /ms mál,
eða málaflokka, sem í framtíðinni getur haft djúptæk áhrif, hver
SVo sem þau varða.
Tiðarfar á árinu hafir verið f meðallagi. Fyrst eftir áramótin
Var allmiklð frost víðast, 10—15 stig austanfjalls, oftast nær —
etr annars gott veður. I öndverðum febrúar tók þó aftur að hitna
i veðri sunnanlands, og var þá oft 6—10 stiga hiti í Reykjavík.
■ð- Norðurlandi voru þá hins vegar frost og kuldar, oft upp undir
20 stig, og að áliðnum febrúar fór einnig að kólna á Suðurlandl,
°g gerði þar þá mikla snjókomu. Hólzt svo þessi tíð um skeið,
eða þangað til í miðjum marz, að hláku gerði um land alt. Voru
þá vfða þrumuveður nokkur og meiri en að jafnaði er venja til,
8Vo að orð var á gert. En ekki urðu skemdir teljandi. Upp úr
þ®8su fór aftur að snjóa og kyngdi niður snjónum þungt og þótt,
efnkum f ömlverðum apríl. Fóllu þá snjóflóð allvíða um land; á
Austfjörðum runnu flóð úr fjöllum bæði í Reyðarfirði og Eskifirðl
°g urðu þau að fjörtjóni einni stúlku á fyrra staðnum. í Seyðis-
firði féll fjóð rótt utan við Búðareyri, ög færði á kaf fbúðarhús
e'tt, sem þó var mannlaust í þann svipinn. FluttÍBt þá fólk um
tíma úr þeim húsum kaupstaðarins, sem talin voru f mestri hættu.
Skutilsfirði hljóp lfka snjóskriða, úr fjallinu andspænis ísafjarðar-
^aupstað, eyddi þar smáhúsi við ströndina og drap eitthvað af fé
1 fjörunum. Mesta snjóflóðið hljóp þó úr Staðarhólsfjalli, við