236 Ritfregnir. [Skírnir nýja og fegurri framtíð fyrir stórbóndaættina, sem heldur velli að lokum, þar sem Valborg horfir fram á veginn með Gunnar, sonarson sinn, í fanginu. Og ferill hennar bendir okkur á, að þrá- in, vonin, hugsjónin á mikið verk að vinna í lífinu og getur rutt björgum úr vegi. Inn í þennan ramma er svo ofið ástum og ógnum, sem gera söguna e. t. v. dálítið ótrúlega, en einnig skemmtilega og spenn- andi". Kaflarnir um mót Sigmundar og stúlkunnar við lækinn og um ástir hans og Kolbrúnar eru meðal fegurstu ástalýsinga í ís- lenzkum nútíðarbókmenntum. Og reik Þóru vitstola kringum bæ- inn í Holtakoti er svo óhugnanlegt, að manni hrýs hugur við að hugsa um þau dimmu og óþekktu öfl, sem þar eru að verki. Jakob Jóh. Smári. íslenzkar þjóSsögur. Safnað hefir Ólafur Davíðsson. I. bindi. Akureyri. Útgefandi Þorsteinn M. Jónsson. MCMXXXV. Geysilegur fjöldi hefir nú á síðustu árum komið út af alls- konar þjóðsögum, og er i sjálfu sér ekki nema gott um það að segja. Þjóðsagnasöfn verða jafnan merkilegar heimildir um lífs- skoðun og trú alþýðu og sitthvað fleira, og auk þess geta þjóð- sögur haft bókmenntalegt gildi. Meðal beztu þjóðsagnasafnenda var Ólafur heitinn Davíðsson, og er ástæða til að fagna því, að hið mikla þjóðsagnasafn hans skuli nú vera byrjað að koma út i heild. Áður hafa komið út nokkrar sögur úr safninu, íslenzkar þjóðsög- ur" (Rvík 1895 og 2. útg. Rvík 1899), auk þeirra, sem prentaðar voru í ,,Huld". Þetta bindi er stórt (384 bls.) og frágangur allur hinn prýðilegasti, en búizt er við, að bindin verði fjögur alls, um það er lýkur. Það er verulegur' fengur í þessari útgáfu. Jónas yfirlæknir Rafnar hefir yfirfarið handritið til prent- unar og samið nafnatal og önnur registur. Jakob Jóh. Smári. Stockholms-Rella av Hannes Finnsson. Utgiven av Arvid Hj- Uggla. Biografisk skiss av Jón Helgason. Pá svenska 1935 av Sam- fundet SverigeIsland. Lars Hökerbergs förlag. Árið 1772 fór Hannes Finnsson (síðar biskup) til Stokk- hólms, ásamt dónskum manni, til rannsókna í skjalasöfnum Svia. Dagbók hans (frá 6. júlí til 13. sept.) eða ferðasaga nefnist Stokk- hólms-rella og var gefin út (íslenzki textinn) eftir frumriti höf- undar í Andvara 1934 af dr. Páli Eggert Ólasyni. Hér birtist hún á sænsku ásamt athugasemdum og skýringum eftir útgefanda og æfiágripi Hannesar eftir dr. Jón biskup Helgason. Bókinni fylgJa nokkrar myndir og tvær ljósprentaðar blaðsíður af eiginhandar- riti höfundarins.