Skírnir] Njála og Skógverjar. 29 sonar; óvíst er um nafnið.) Nú mætti spyrja, hvort það sé rétt, sem Njála segir, að þeir bræður Þorleifur hafi átt bú annað í Skógum (146. kap.). Það gæti vitanlega verið, og þá heldur í Eystri-Skógum. Hitt er þó líka mögulegt, að þetta sé misskilningur og þeir frændur hafi ekki komið nærri Skógum fyrr en löngu síðar. En þar sem það er alveg vafasamt, verður ekkert af því ráðið. Skógverja hinna síðari er getið á ýmsum stöðum, í Landnámu, Sturlungu, annálum, ártíðaskrám og fornbréf- um; vanalega eru þó nöfnin tóm; aðeins örsjaldan þykj- umst vér sjá gegnum þoku einhverja andlitsdrætti. Ég skal nú í stuttu máli gefa yfirlit yfir þá frændur á 13. öld. Njáll og Hildur áttu tvo sonu og eina dóttur, sem kunnugt sé um, Skóga-Skeggja, Krák í Steinum og Álfheiði. Njáll kemur annars ekki við sögu; við vitum ekki, hvort hann var nokk- uð líkur nafna sínum; hann andaðist 24. marz 1236. I Skógum gerðist á hans dögum sættafundur Sæmundar í Odda og Sigurðar Ormssonar, 1221 sættarfundur Lofts Pálssonar og Þorvalds í Hruna, þar var þá staddur Ormur Svínfellingar með þrjá tigu manna: hann gengr á milli ok ferr vel með sér." Það kynni að vera, að hann hafi átt dálítið erindi við Njál bónda þá eða öllu heldur eitthvað síðar, og hafi verið á biðilsbuxum, því að upp úr þessu takast tvöfaldar mægðir með Skógverjum og Svínfelling- um; Njáll giftir Ormi Álfheiði dóttur sína, en Ormur gifti Skeggja Njálssyni systur sína Solveigu. Ormur og Alfheiður áttu, sem kunnugt er, þrjá sonu og eina dóttur: Sæmund, Þóru, Guðmund og Orm, sem var fæddur eftir dauða föður síns. Skeggi bjó í Skógum eftir föður sinn. Þau Solveig áttu 5 börn: Klæng, Þorstein, Eyjólf, Jón prest og Arnbjörgu. Skóga-Skeggi kemur lítið við sögu, en hann hefir verið mikilsvirtur maður. Hann gerði með Brandi ábóta (og Þorgilsi skarða og Gizuri Þorvaldssyni) um víg Ormssona 1252. Skeggi andaðist 24. ágúst 1262. Eftir Skeggja bjó í Skógum Eyjólfur, hans son var Brandur í Skógum (d. 1331), sem hefir verið kunnur mað-