54 Sir William A. Craigie sjötugur. [Skírnir þeim á útlent mál sem Craigie í þeim f áu þýðingum, sem hann gerði. Hann ritaði og grein um ýmsar bragreglur í dróttkvæðunum, þar sem hann gagnrýndi sumar af kenn- ingum Sievers. Tvær greinar birti hann um norræn orð í keltneskum (gæliskum) málum og keltnesk orð og nöfn í norrænu. Ennfremur grein um Ara fróða. Hann þýddi ýmsar fornar þjóðsögur úr íslenzkum sögum, og gaf út Skotlandsrímur síra Einars Guðmundssonar, og valdi ís- lenzk nútímakvæði í Oxford-sýnisbók norrænna Ijóða. Tvær litlar bækur, önnur um forntrú norrænna manna, hin um íslenzkar fornsögur, komu og frá hans hendi, báðar vel ritaðar, og gefur hin síðari mjög gott, stutt yfirlit yfir sagnaritunina. Hann gaf og út sérlega handhæga kennslu- bók í íslenzku fyrir byrjendur, og nýlega nokkra fyrir- lestra um skozk og norræn áhrif á enskar bókmenntir. Ýmislegt fleira mætti telja, sem hann hefir ritað, en eg læt þetta nægja. Það er kannske ekki svo mikið að vöxtum, sem Craigie hefir skrifað um íslenzk efni, en það er allt næsta eftir- tektarvert, því að það sýnir þekkingu hans og nákvæmni, enda má það merkilegt heita, hve vel hann hefir lært ís- lenzka tungu jafn-annríkt sem hann hefir haft um dag- ana. Hann mun hafa kennt íslenzku mestan hluta þess tíma, sem hann dvaldi í Oxford. Hann er hinn mesti starfsmaður, og má nú víst telja hann hinn fremsta af núlifandi orðabókarhöfundum. Á því sviði hefir hann og látið til sín taka með tilliti til íslenzku. Það var að hans hvötum, að Geir Zoéga rektor tók að sér að gera þann út- drátt úr orðabók Cleasby's yfir fornmálið, sem Clarendon Press gaf út 1910, og megum við vera þakklátir fyrir það, því að, þótt undarlegt sé frá að segja, er þessi litla orða- bók eina orðabókin yfir fornmálið, sem nú er fáanleg í bókaverzlunum. Eg veit og, að Craigie hefir verið þess mjög hvetjandi, að Clarendon Press gerði gangskör að því, að koma í framkvæmd stórri orðabók yfir þetta mál í stað Cleasby's, sem nú er löngu útseld; en hingað til hefir ekki tekizt að koma því á veg. Honum hefir lengi verið það