Skírnir] Goðorð forn og ný. 57 Samkvæmt lögskýringu í tíundarlögum var goðorðið veldi", en eigi fé"3 og kjarni eða þungamiðja þessa. veldis var. einmitt sá réttur, að nefna dóma á þingum".4 Kemur þetta öldungis heim og saman við það, að í laga- máli eru aðeins þau goðorð talin full", sem hlutdeild höfðu, bæði í fimtar- og fjórðungsdómum. Þau ein nutu fullrar þátttöku í allsherjarstjórn. Svo sem ráða má af niðurlagsorðum framanskráðrar greinar um nefnu í f jórðungsdóma, fór 1 maður með hvert goðorð fornt og fullt á alþingi, þótt það kynni að vera í eigu fleiri manna. Hin almenna regla um meðför goðorða á þingum birtist og á öðrum stað í Þingskapaþætti og hljóðar svo: Ef þeir eiga 2 goðorð saman, og skal hinn sami með fara 3 þing, vorþing, alþingi og leið. Þá skulu þeir skipta á leið háðri".5 Hefir þessi regla óefað gilt jafnt um ný sem forn goðorð. Þegar nú þess er gætt, að 1 mað- ur átti sæti í fimmtardómi fyrir hvert hinna fornu goðorða, ftiáí það heita sjálfgefið, að dómendatala nýju goðorðanna hafi verið ákveðin á sama hátt. Munum vér og brátt ganga úr skugga um það, að eftir að fimmtardómslög voru sett, er tala goðorðanna jöfn dómendafjölda fimmtarréttarins i goðorðin alls 48, forn og full goðorð 36, en 12 ný. Svo sem alkunnugt er, var fimmtardómur lögleiddur laust eftir aldamótin 1000 í lögsögumannstíð Skafta Þór- oddssonar (10041030).6 Tólfþingaskipunin, sem við er miðað í framanskráðri lagagrein um nefnu í fjórðungs- dóma, hlýtur að vera nokkru eldri. Það vill nú svo vel til, að náið má kveða á um það, hvenær í fyrstu var frá henni vikið með upptöku nýrra goðorða. Er Ari hinn fróði í Islendingabók sinni hefir greint frá deilu þeirra höfðingjanna Tungu-Odds og Þórðar gell- is útaf brennunni í Örnólfsdal, kemst hann þannig að °rði: Þá var landinu skipt í f jórðunga, svo að 3 urðu þing í hverjum f jórðungi, og skyldu þingunautar eiga hvar sak- sóknir saman, nema í Norðlendingaf jórðungi voru 4, af því að þeir urðu eigi á annað sáttir. Þeir, er fyrir norðan voru Eyjaf jörð, vildu eigi þangað sækja þingið, og eigi í Skaga-