Skírnir] Goðorð forn og ný. 81 vg átti hann, sem kunnugt er, í mörgu að snúast á næstu árum. Fyrst að hefna Odds bróður síns og því næst að endurheimta fyrir hönd Steinvarar á Keldum, tengda- móður sinnar, eignir og goðorð Þórðar kakala í Eyja- firði.53 Hefir þar á meðal verið Laufæsingagoðorð. Er fer- ill þess auðrakinn frá Guðmundi dýra til Þórðar kakala.5* Tíu árum eftir að Oddaverjar höfðu gefið konungi goðorð sín, reið Gissur jarl af alþingi með f jölmenni aust- ur um ár og hélt fund með Rangæingum að Þingskálum. í.Var Björn Sæmundarson fyrir þeim og Loftur Hálfdán- arson. Sóru Rangæingar þá Gissuri jarli og Hákoni kon- nngi eiða að upphafi".r,r> Kemur hér fram að nýju og í síðasta sinni tvískiptingin á mannaforræði Oddaverja. Má 3-uðsýnt vera, að Loftur hefir svarið sem handhafi Hvíta- nesgoðorðs, en Björn fyrir hið forna goðorð Hofverja, er att hafði Haraldur bróðir hans. Sextán árum síðar finn- um vér Þorvarð Þórarinsson til heimilis í Odda. Hafði nann þá sýslu fyrir sunnan heiðar".56 Niðurstaða rannsóknarinnar á fimmtardómsgoð- 0rðum" Njáluhöfundar hefir nú orðið sú, sem vænta mátti. Ull eru þau hlutar fornra goðorða. Ljóst verður það um eið, á hvaða rökum Njáluhöfundur fyrst og fremst muni nata byggt kenningu sína um fimmtardómsgoðorðin". L'itum bara á goðorðaskipun Rangárþings. Frá 1222 til 1263 eiga Oddaverjar og Haukdælir goðorð þar að jöfnu. -L'Ogum samkvæmt áttu að sitja á miðpalli lögréttu fyrir goðorð þessi 4 menn, sem nefndu svo 4 dómendur í fimmt- ^rdom. Þar sem handhafar goðorðanna voru einnig 4 má ætla, að í reyndinni hafi Oddaverjar og Haukdælir skip- ao hvorir um sig 2 sæti á miðpalli lögréttunnar fyrir ^¦angárþing, og þá Skarðverja- og Hvítanesgoðarnir not- 10 jafnréttis við þá, sem fóru með ódeildu goðorðin. Vit- anæga hefir þó annan þeirra orðið að láta sér nægja rétt orráðsgoða við dómnefnur og hefir það verið Hvítanes- Soðmn. Þess vegna treystir Njáluhöfundur sér til, að gera ^oðorðshluta þann, sem Freysgyðlingar og síðar Filippus a Hvoli hafði átt, að gömlu fimmtardómsgoðorði". G