Skírnir] Þegar íslenzkan var ál. móðurm. Norðurl.mála. 119 Nútímaskoðun málfræðinga má því lýsa á þennan hátt: Samnordiskan" eða samnorrænan sem er kvísl af hinum germönsku málum , tók á 8. öld að greinast. í>aðan spruttu fyrst tvö mál, austurnordiska" og vestur- nordiska" eða norræna". Af hinu fyrra urðu danska og sænska; en norræna var sú kvísl, sem var töluð í Nor- egi og á Islandi. Islenzkan var fyrst nýlendumál. En hún varð meir og meir sjálfstæð tunga. Með því að hún þegar í fornöld gaf okkur þessar dæmalausu bókmenntir, fær hún frá okkur málfræðingum, og öllum sem kunna að meta háa list, miklu meiri þakkir en ef sómi hennar væri mnifalinn í því einu, að vera móðurmál Norðurlanda. Eg hefi þorað að bjóða íslenzkum almenningi þetta yfirlit yfir málfræðilegt viðfangsefni, af því að eg veit af eigin reynslu, hve aðdáanlega mikill og almennur áhug- mn, og skilningurinn, á þessum efnum er á Islandi.