Skírnir] Grímur Thomsen og Byron. 133 hversu vonir vorar um lífshamingju mark vort og mið ¦ eiga langt í land að rætast. I lokakafla ritsins (bls. 232238) dregur Grímur saman niðurstöður sínar. Fjallar þáttur þessi meðal ann- ars um áhrif Byrons á seinni tíðar skáld í Frakklandi og á Þýzkalandi; en þar gætti áhrifa hans mest, þegar um- rætt rit var samið. Auk þess færist Grímur í fang, að geta í þær eyður, hvert verða muni framtíðar-hlutskipti Byrons °g rita hansj og reyndist hann að ýmsu leyti næsta get- spakur. Hann benti t. d. á það, að Don /íwm-kviðan, snjalla °g gáskafulla, myndi víða fara og að margir myndu líkja eftir henni; enda kom það á daginn. Ýmsir urðu til að yrkja þjóðfélagslegar ádeilur í anda Don Juans, svo sem danska skáldið Paludan-Miiller með Adam Homo. Önnur rit Byrons hafa einnig, eins og Grímur gat til, orðið síð- ari skáldunl fyrirmynd og hvatning. Auk þess sem rit Gríms um Byron er, eins og að framan greinir, mjög merkilegt frá bókmenntasögulegu sJonarmiði, hefir þ'aðeinnigsjálfstættbókmenntalegtgildi. ¦Það er háfræðimannlega samið, efninu vel niður skipað, nakvæmt og áreiðanlegt, þegar til greina er tekið, að það Var ritað fyrir fullum 90 árum, og Byron-rannsóknir hafa y^tanlega síðan aukizt stórum skrefum, og f jöldi nýrra og °missandi heimilda fyrir hendi, sem eigi varð náð til á dögum Gríms. Ritaskrá hans ber því eigi að síður vitni, að nann hefir, eins og vikið var að, bæði kynnt sér allar að- alheiniildir, sem þá voru fáanlegar, og mörg minni háttar rit. Hann hefir auðsjáanlega gert sér allt far um, að tæma Vlðfangsefni sitt, að grafa þar til kjarnans og sýna Byron 1 sem sönnustu ljósi. Hann fylgir ekki heimildarmönnum sinum í blindni; hiklaust gagnrýnir hann rit þeirra, og nefir margt við þau að athuga. Hann kvartar réttilega um skort á glöggri og öfgalausri lýsingu á Byron, og sér- staklega um vöntun á sögulegri túlkun á ævi skáldsins og nstgáfu, því að enginn af ævisögriturum hans fram til Þess tíma hafi látið sér skiljast til fuUs hið nána sam- oand skáldsins við samtíð hans. Úr þessum ágalla fyrir-