Skírnir] Hvað varð að bana Þiðranda Hallssyni? 175 dögum saman, en stundum með hálfgerðu óráði svo dægr- um skiptir,-----------en batnar þó.-----------Ekki bíða bana allir þeir, sem fyrir eldingum verða, missa jafnvel ekki ætíð meðvitund.------------Oftast verða truflanir á hjart- slætti, stundum ber á nýrnaveiki eftir á og alloft skemmd- fr á sjón og heyrn.-----------Rétt er að setja það á sig, að Þeir, sem orðið hafa fyrir rafstraumi, svo að andardrátt- ur þeirra og hjartsláttur virðist vera stöðvaður, geta oft lifnað við, ef lífgunartilraunum er beitt". 1 enn öðru riti er læknum tekinn vari á að rita dán- arvottorð þeirra manna, sem orðið hafa fyrir eldingar- slysum, nema því aðeins, að reyndar hafi áður verið lífg- unartilraunir, andardráttar-hreyfingar og ötular nudd- tilraunir á brjóstholinu vinstra megin, eða öllu heldur hnoðaður hjartastaður, til þess að örva hjartað til starfa". Mætti ef til vill hugsa sér, að þetta hraustmenni hafi svo vel staðizt eldingar-áhrifin, að hann hafi ekki veriS með öllu bugaður, er hann fannst, og því getað sagt frá slysinu, en að hann hafi þá fyrst orðið magnþrota, er t>eirri skýrslu hans var lokið, og þá fyrst fallið í dá og orðið úr dauði af úrræðaleysi þeirra, er að stóðu. I nýlega útkomnu merku læknisriti segir svo um þessi slys: Lífgunartilraunir með öndunar-hreyfingum er nú sem stendur hin eina viðurkennda læknisaðgerð". En þar á Hofi var þá enginn, er þær limrúnir" kunni. Heimildarrit : Reference Handbook of the medical Sciences, New York 188390. Vol. IV. (Lightning). "eal-Encyclopadie d. ges. Heilkunde. II. og XII. B. Osler: Modern Medicin, Philadelphia and New York 1907, VII. B. L- Harbitz: Retsmedicin, Oslo 1926. V. Bergmann u. R. Stahelin: Handb. d. inn. Krankheit, Berlin 1927. Bergmann mit Stroebe, Dorr, Eppinger etc: Handbuch der inn. Krankheiten, Berlin 1931. aylor's Principles of medical Jurisprudence, London 1934. Ritað 1937.