194 Um örnefnarannsóknir. [Skírnir- að minna á örnefni eins og Sængurkonusteinn í Vest- mannaeyjum, því örnefni fylgir sú sögn, að í ringulreið þeirri, er varð, er Algiermenn gengu á land í Vestmanna- eyjum og rændu, hafi kona alið barn hjá steini þessum. Á nokkrum stöðum á landi voru eru vatnsból nefnd Gvend- arbrunnar, t. d. í grennd við Reykjavík og í Aðaldal. Þeim fylgir sú sögn, að Guðmundur Arason hafi vígt þá. Úr sögu hans vita menn, að hann vígði vatnsból, þar sem hann fór um. Mun því erfitt að mæla á móti því, að hann hafi einmitt vígt þau vatnsból, sem við hann eru kennd. Atvik þau eða atburðir, sem varðveitast með örnefn- unum, eru að vísu oft smávægilegir, en þó oft ekki ómerk- ari en annar fróðleikur, sem hlýða þykir að halda til haga. íslenzk örnefni og náttúrurannsóknirnar. Gildi ís- lenzkra örnefna fyrir náttúrurannsóknir landsins myndi ef til vill reynast að sumu leyti minna en t. d. sænskra ör- nefna fyrir náttúrurannsóknir Svíþjóðar, því að dýralíf' er hér heldur fáskrúðugt og hefir tekið litlum breyting- um. En að sumu leyti aftur á móti gæti íslenzk örnefni reynzt jafnmikils verð og jafnvel meira verð en sænsk örnefni, því að Island hefir tekið miklum og margs konar yfirborðsbreytingum síðan á landnámsöld, og eru örnefn- in ein stundum til vitnis um þær. Af mörgum örnefn- um má t. d. ráða, að skógargróður hefir verið, þar sem nú eru hraun og sandar. í Landsveit eru víðlend hraunsvæði, sem nefnast Skógar; þar er og eyðijörð, sem nefnist Mörk,- án þess að þar sé framar neinar skógarleifar að finna. Inn frá Gamla-Klofa í Landsveit er sandur, sem nefnist Klofavöllur, nafnið ber með sér, að þar hefir fyrr á tím- um verið grasvöllur. Mýrlent, grösugt svæði meðfram veg- inum um Landsveit heitir Botnasandur, kenndur við bæ- inn Lækjarbotna. Ber nafnið með sér, að þar hefir ein- hvern tíma verið sandur, enda er hálfuppgróið hraun ekki langt frá, og bendir það í sömu átt og örnefnið. ¦ Eins og þegar er sagt, verður minna ráðið af örnefnunum um breytingar á dýralífi í landinu, því að það er að mestu Ieyti hið sama og um landnámstíð. Hins vegar má ráða