246 Ritfregnir. , [Skírnir' o. fl. Ef flokka ætti ræðurnar eftir efni, þá er stærsti flokkurinn (um 20 ræður), ræður, sem fluttar hafa verið fyrir minni ýmsra ágætismanna, skálda, listamanna og vísindamanna. Hefir dr. Guð- mundur í þeim ræðum hyllt fagurlega marga þeirra manna, sem mest andleg verðmæti hafa gefið þjóð vorri. Eg hygg, að það sé ekkert oflof að segja, að í bókinni sé engin ræða, sem ekki sé góð, og að flestar þeirra séu ágætar. And- ríki höf., hugkvæmni hans og orðsnilld kemur þar hvarvetna fram. Margar eru ræður hans gamansamar, bráðfyndnar og skemmtilegar. En jafnframt er þar alvöru að finna, trú höf. á hið fagra, sanna og góða, ást hans og aðdáun á því. Eg efast um, að dr. Guðmundur hafi lýst sjálfum sér betur í nokkru af ritum sínum en í þessari bók, þó honum sjálfum hafi fráleitt komið það til hugar. Vér, cem þekkjum hann, sjáum hann sjálfan í þessum ræðum hans, hinn and- ríka, hugkvæma og drenglynda mann, sem hugsar rétt og vill vel og er gæddur þeirri guðagjöf, að geta flestum mönnum betur klætt hugsanir sínar í búning orðanna. Áhrif ræðu eru undir tvennu komin, efni hennar og ílutningi. Sumir menn geta samið ræður, sem eru ágætar að efni, en er bvo ósýnt um flutninginn, að þeir ná engum tökum á áheyrendum BÍn- um. Öðrum er það gefið, að geta hrifið fjölmennan áheyrendahóp með því seiðmagni, er felst í flutningi þeirra á ræðu, sem e. t. v. er einskis virði að efni til. Því er það svo, að stundum, er vér lesum ræður, er vér höfum hlýtt á með aðdáun, þá verðum vér fyrir von- brigðum og þykir mun minna til hennar koma á prenti en af munni ræðumannsins. Allir, sem hlýtt hafa á dr. Guðm. Pinnboga- son, munu játa það, að ræðuflutningur hans er frábærlega ranjall. Áhrifin af því tapast vitanlega, er vér lesum ræður hans. En eg býst samt við, að svo fari fyrir mörgum, er lesa þessa bók, að þeir gleymi því, jafnvel sakni þess ekki. Eæður hans halda gildi sínu þó þau áhrif glatist. Þær þola það hvorttveggja, að vera heyrðar og að vera lesnar, og mætti hver ræðumaður óska þess eínum ræðum til handa. Útgefandinn, ísafoldarprentsmiðja h.f., hefir vandað frágang bókarinnar hið bezta. Ritið er falleg bók, bæði að efni og útliti. Ó.L.