Skírnir Einar Benediktsson 23 djúpið. Æfistarfinu er lokið. Hann hefir sagt sitt síðasta orð. Hann sagði það með niðurlagserindinu í Hvömmum fyrir níu árum, og með þeim hinzta boðskap skáldsins sjálfs vil eg ljúka þessu máli: Hafknörinn glæsti og fjörunnar flak fljóta bæði. Trú þú og vak. Marmarans höll er sem moldarhrúga. Musteri guðs eru hjörtun, sem trúa, þó hafi þau ei yfir höfði þak.