28 Guðni Jónsson Skírnir hvorki verið leiðréttar né lagfærðar eftir rituðum heim- ildum. Þjóðsögur, sem hafa verið látnar sæta sagnfræði- legri meðferð af skrásetjarans eða safnandans hendi, missa um leið gildi sitt sem þjóðsögur og verða gagns- lausar sem heimild um það, hvernig þær voru, meðan þær gengu manna á milli í munnlegri geymd, og koma því ekki til greina hér. Rétthermi þjóðsagna um söguleg atriði getur verið und- ir ýmsu komið. Er þar fyrst til að telja aldur þeirra. Ald- ur þjóðsögu er sá tími, sem líður frá því, er atburður sá gerðist, sem varð tilefni hennar, og til þess er sagan er færð í letur. Að vísu má segja, að sagan þurfi nokkurn tíma til þess að myndast og sé ekki fullmynduð fyrr en alllöngu eftir að atburðui'inn gerðist. En eftir því, sem eg hefi komizt næst, skapast sagan oftast nær á tiltölulega mjög skömmum tíma, svo að einsætt virðist að miða ald- ur sögunnar við atburðinn, sem hún er sprottin af, enda er hann hið eina, sem unnt er að tímasetja, ef þess er nokkur kostur á annað borð. Almennt mun mega telja svo, að því yngri sem saga er, því meiri líkur séu fyrir því, að hún hermi rétt frá. Því fer þó fjarri, að svo sé allt af, eins og dæmi munu nefnd um hér á eftir. Annað atriði, sem valdið getur miklu um rétthermi þjóðsagna, má telja það, hvar og hvernig þær hafa geymzt. Venju- lega mun mega telja þær sagnir áreiðanlegri, sem geymzt hafa á þeim stað eða í þeirri sveit, sem þær hafa gerzt í öndverðu, heldur en ef þær hafa borizt í annan landsf jórð- ung og verið skráðar þar. Þá virðast og þær sögur yfir- leitt áreiðanlegri, sem geymzt hafa í sömu ætt eða eru sérstaklega við eina ætt tengdar, heldur en sögur, sem borizt hafa á dreif. Loks má minna á almennan fróðleik og áreiSanleik sögumanna og heimildarmanna. Þannig getur sama sagan tekið á sig harla ólíkar myndir eftir því, hvar, hvenær og eftir hvaða heimildarmönnum hún er skráð, og eru slíkar missagnir af sömu sögunni kunnari en frá þurfi að segja. Eg skal þó sem sýnishorn taka eina sögu um nafngreindan mann, og vel eg til þess sögu, sem