Skírnir Sannfræði íslenzkra þjóðsagna 31 III. Meðal þess, sem mjög er athyglisvert í þessu efni, er mannfræði þjóðsagnanna, og skal nú fara um hana noklc- urum orðum. Eins og fyrr er getið, nefna þjóðsögur fjölda fólks víðs vegar um land, einkum frá þremur síð- astliðnum öldum. Stundum eru menn nefndir með nafni eingöngu, án föðurnafns og heimilis, nema hvað tilgreind er ef til vill sveitin eða héraðið, þar sem þeir áttu heima. Um slíka menn verður ekkert frekara vitað né grafið upp. En oftast eru þó ummæli sagnanna ákveðnari, heimili til- greint og jafnvel föðurnafn. Er þá alla jafnan hægt að hafa uppi á mönnunum, sem við er átt, með gaumgæfi- legri leit og samanburði við manntöl, kirkjubækur og aðr- ar fleiri heimildir. En slíkt er mikilsvert atriði um rann- sókn þjóðsagnanna í heild sinni, því að um leið er hægt að tímasetja sögurnar sjálfar eða setja fast aldurstak- niark þeirra upp á við. Athugun á þessu leiðir m. a. í ljós, að útilegumannasögur eru flestar til orðnar á 17. og 18. óld, draugasögur á 18. og 19. öld og huldufólkssögur að mestu á sama tíma. Loks er allmikill hópur sagna, þar sem frásögnin beinist að heilum ættum, margir af sömu astt eru nefndir við sögu og skyldleiki þeirra eða venzl eru rakin. Það má minna á sögur eins og Sels-Móra, Sól- heima-Móra, Írafells-Móra, Hvítárvalla-Skottu og ýmsar fleiri, sem eru eins konar ættarsögur. Flestar slíkar sög- ur eru ekki eldri en það, að öruggar heimildir eru til sam- anburðar um mannfræði þeirra. Og það má taka það fram strax, að þegar á allt er litið, gætir skekkna og rangra ^ttfærslna furðu lítið, jafnvel í allgömlum þjóðsögum. Verður í því sambandi að hafa það hugfast, að sögurnar eru geysilega miklar að vöxtunum til. Merkilegt verður það að teljast, hversu lengi nöfn ým- issa fyrri tíðar manna hafa getað geymzt rétt í þjóðsögn- Uni, sem eru að öðru leyti mjög svo skáldskaparkenndar. Nafn mannsins og heimili er hið eina, sem eftir stendur fiieitlað í minningunni, þó að allt annað sé gleymt fyrir ^öngu. Eg skal aðeins nefna sögur eins og Þórð á Þrasta-