Skírnir Sannfræði íslenzkra þjóðsagna 37 talinn 57 ára gamall 1703, er kallaður Sigurðsson (I, 546), en, hann var Jónsson. Jón skáld á Berunesi, er segist vera 43 ára árið 1682, er talinn Guðmundsson (I, 100), en hann var Jónsson. Gyðríður Hallsdóttir, kona Eiríks í Bót, er nefnd Guðríður Guttormsdóttir (II, 148). Galdra-Brandur í Þykkvaskógi er talinn Egilsson eða Einarsson (I, 599), en hann var Jónsson (sbr. Hyllingarskjöl 1649, bls. 26). Loks er síra' Hálfdan í Felli, dáinn 1568, talinn Einarsson eða Eldjárnsson (I, 515), en hann var Narfason. 3) Röng heimilisföng. Sem dæmi má nefna: Þorleifur landsþingsskrifari er sagður hafa búið að Háamúla í Fljótshlíð (II, 175), en hann bjó í Hlíðarendakoti. Hann dó árið 1805. 1 sögunni af hjúunum á Aðalbóli segir, að Gunnlaugur Árnason, er óvættur varð að bana árið 1749, hafi átt heima á Aðalbóli, en hið rétta er, að hann átti heima á Brú í Jökuldal. Þá segir svo um Þórð Steingríms- son, sem fyrr er getið, að hann hafi búið á Þrastastöðum á Höfðaströnd, en hann bjó í Þrastastaðagerði. 4) Ruglað saman venzlum eða mönnum vegna skyld- leika. I sögunni af Hafnarbræðrum segir, að Árni, sonur Hjörleifs sterka, hafi dáið óharðnaður um tvítugs ald- ur" (II, 157). Þetta getur með engu móti átt við Árna, Því að hann dó 1833, 42 ára að aldri, og var kvæntur maó- ui". Ummælin munu eiga við bróður hans, er Magnús hét °g dó aðeins 24 ára gamall árið 1824. í sögunni af háleita Bjarna (I, 403) er Finnur eldri í Syðri-Ey á Skagaströnd, sem var Jónsson og 72 ára gamall 1762, kallaður Magnús- s°n af því að föðurnafni hans hefir verið ruglað saman við nafn dóttursonar hans, Finns Magnússonar, er þar ojó eftir hann. Kristín (d. 1785), kona síra Jóns Sigurðs- sonar í Hvammi í Norðurárdal, er talin Guðmundsdóttir °S systir Eggerts á Álftanesi á Mýrum, en hið rétta er, að hún var dóttir Eggerts. Þá segir og, að Björn skafinn (d. fyrjr 1559) hafi átt fyrir konu Margréti, dóttur Mar- Srétar ríku á Eiðum, og svo telur Jón Pétursson einnig í Tímariti sínu (II, 51). En hið sanna er, að kona hans hét Hólmfríður Þorvarðsdóttir og var systir Margrétar ríku.