-kírnir Sarmfræði íslenzkra þjóðsagna 43 hann vakti upp. Heppnaðist honum að losna aftur við kerlingu, sem var hin æfasta, fyrir hjálp prestsins á staðnum, er hafði grun um, að eitthvað væri á seyði í kirkjugarðinum. En áður en kerling fer niður aftur, hræk- }i hún í auga syni sínum, og átti hann að hafa fengið vaglið á augað af þessu atviki. Pétur þessi var Jónsson og átti heima í Litla-Árskógi á Árskógsströnd. Hann dó þann 5. september 1829, 85 ára að aldri. Um hann segir svo í kirkjubókinni: Var sjónlaus 24 ár; slokknaði út af af aldurdóms hrörleik". Sá sannleiksneisti er því í þessari ótrúiegu sögu, að Pétur þessi var og hét á þeim tíma, sem sagan segir, og í þeirri sömu sveit og dó gamall. Hitt er hins vegar missögn, að hann hafi verið einsýnn, þar sem kirkjubókin sýnir, að hann hefir verið sjónlaus í 24 ár. Saga þessi er skráð eftir sögnum úr Eyjafirði. Sagan af Stúlkunni í Álftamýrarsókn" (Þjóðs. J. Á., I> 298) er skráð eftir sögnum úr ísafjarðarsýslu. Hún er um stúlku, sem drukknaði af tveimur bræðrum sínum við heyflutning og gekk aftur að því, er talið var, til þess að koma fram hefndum á manni einum þar í nágrenninu, er hún hafði lagt ástarhug á, en hann hafði eigi viljað sinna henni. Segir sagan, að þetta væri fyrir fáum árum, og fiefnir ekki nafn stúlkunnar. Saga um þetta er í Vestfirzk- um þjóðsögum (ísafirði 1909), en einkum er hún ýtarlega rakin í Vestfirzkum sögnum, I, 289319. Stúlka þessi hét fullu nafni Gunnhildur Sumarliðadóttir og átti heima á Sveinseyri við Dýraf jörð, og er það í Hraunssókn, en ekki í Álftamýrarsókn. Gunnhildur drukknaði þann 24. ágúst 1793. Segir kirkjubókin, að þann dag( hafi í sjó dáið áður- ^iefnd stúlka, 39 ára gömul. Vafalaust er, að þetta er sama sagan, þótt svo segi, að hún hafi átt að gerast fyrir fáum arum. Gunnhildur þessi hefir verið. með magnaðri aftur- Söngum, og sást hún síðast fullum 120 árum eftir að hún íór á kreik, að því er sagnir herma. En sú er trú manna, að draugar nái í mesta lagi 120 ára aldri. Ýmsar ekki °fróðlegar missagnir um Gunnhildi eru tíndar til í Vest- firzkum sögnum.