44 Guðni Jónsson Skírnir Af draugum, sem tímasetja má með vissu, skulu enn aðeins tveir nefndir, en það eru afturgöngur þeirra Skora- víkur-Jóns og Jóns Gizurarsonar. Um Skoravíkur-Jón er auk sagnanna í Þjóðsögum Jóns Árnasonar þáttur prent- aður í Blöndu, VI, 9194, eftir handriti síra Friðriks Eggerz með athugasemdum eftir dr. Hannes Þorsteins- son. Ber frásögnum þeim saman um flest, er máli skiptir. Eftirtektarvert er, að hvorki þjóðsögurnar né þáttur síra Friðriks láta þess getið, að auk Jóns, Steinunnar og Guð- mundar á Hellu var f jórði maður á bátnum með þeim, er þau Jón og Steinunn drukknuðu, og fórst hann með þeim. Þvert á móti taka sagnirnar það fram, að þau hafi ein- ungis verið þrjú saman. Drukknun þeirra Skoravíkur- Jóns varð þann 27. okt. 1791. Guðmundur sá, sem með þeim var og af komst, var Teitsson og bjó síðar á Kvenna- hóli. Hann dó árið 1826, nálægt 63 ára að aldri. Um Jón Gizurarson er stutt saga í Þjóðsögum Jóns Árnason- ar (I, 300). Segir svo frá, að þeir nafnar Jón Gizurarson og Jón Steingrímsson hafi verið á sama skipi inn Hvamms- fjörð, báðir verið menn kaldlyndir og deilt illdeilu. Fór svo, að Jón Gizurarson hézt við nafna sinn, steypti sér út- byrðis og lézt þannig. Gekk hann aftur og ásótti nafna sinn. Lenti þeim saman í áflogum, en síra Einar í Hvammi skildi þá og sá svo um, að Jóni Steingrímssyni yrði eigi mein að nafna sínum. Upptök þessarar sögu er að finna í prestsþjónustubók Hjarðarholts árið 1784. Við árslokin það ár hefir prestur ritað í bókina: Jón Gizurarson úr Rifi drukknaði af skipi hér rétt við land 13. júlí; er ei f undinn til dato". Það hef ir þótt kynlegt, að lík Jóns skyldi ekki finnast, þar sem hann drukknaði rétt uppi við land- steina, og hefir slíkt ýtt undir þjóðtrúna. Af Jóni Stein- grímssyni er það að segja, að hann bjó lengi að Hömrum í Laxárdal og varð gamall maður. Hann varð úti í kafaldi þann 9. nóv. 1830, 83 ára gamall. Kemur þetta heim við frásögn þjóðsögunnar af ævilokum hans. Saga þessi er skráð af síra Benedikt á Brjánslæk nærri 75 árum eftir drukknun Jóns Gizurarsonar.