50 Guðni Jónsson Skírnir handriti síra Jóns Þórðarsonar á Auðkúlu, en hann ól aldur sinn í Gullbringusýslu og Árnessýslu, áður en hann fluttist að Auðkúlu. Þar segir svo frá: Á Prestsbakka á Síðu í Skaftafellssýslu var einu sinni prestur, er Einar hét. Hann var auðmaður mikill og átti fjölda barna. Hann hafði andstyggð á huldufólkssögum og sagði, að huldufólk hefði aldrei verið til, særði það að heimsækja sig og hældist um á eftir að það hefði ekki hitt sig. Eina nótt dreymdi hann, að maður kom að rekkju hans og mælti: Héðan af skaltu aldrei þræta fyrir, að huldufólk sé til, og skal ég nú ftaka elztu dóttur þína, og skaltu aldrei sjá hana upp héðan; þú hefir lengi eggjað oss álfa". Að morgni var elzta dóttir prestsins horfin, og var hún 12 vetra. Var hennar víða leitað, og fannst hún hvergi. En þegar systkini henn- ar voru að leika sér á túninu, kom hún í hópinn og lék sér með þeim. Vildu þau fá hana heim með sér, en þá hvarf hún ávallt. Hún sagði systkinum sínum, að ofboð væri vel farið með sig og hún ætti mikið gott. Föður hennar var ávallt að dreyma hana, og sagði hún honum allt hið sama af sér og hún hafði sagt syst- kinum sínum, og það með, að sér væri ætlaður prestssonurinn hjá álfafólkinu. Fór svo fram um hríð, þangað til hún kom og sagði föður sínum, að nú langaði sig til, að hann sæti brúðkaupsveizlu sína hjá sér á morgun, því að nú ætti það fram að fara. Upp frá því dreymdi hann hana aldrei". Menn sjá þegar við samanburð, að frásögnunum ber æði mikið á milli. Ég skal aðeins nefna það, að Bjarni segir, að prestsdóttirin hafi verið 18 ára, er hún hvarf, en þjóð- sagan, að hún hafi verið 12 vetra. Bjarni nefnir prestinn Þorlák og dóttur hans Katrínu, sem var yngsta dóttir prests, en þjóðsagan nefnir prestinn Einar, kann ekki nafn á dóttur hans, en segir, að hún hafi verið elzta dóttir prests. Annars er hægt að gera sér grein fyrir því, hvers vegna þjóðsagan nefnir prestinn Einar. Svo er mál með vexti, að tveir fyrirrennarar síra Þorláks í prestakallinu hétu báðir Einar og voru báðir merkir menn og prófast- ar í héraðinu, síra Einar Bjarnason 16861720 og síra Einar Hálfdánarson 17201753. Þegar sagan um hvarf prestsdótturinnar kemst í önnur héruð og frá líður atburð- inum, er hún því sett í samband við nafnana, sem höfðu verið prestar í Kirkjubæjarklaustri í samfleytt 67 ár og