Skírnir Mexíkó 79 frumskógi og byggður af fákunnandi og hálfvilltri bændaþjóð, en var fyrir 7 öldum mesta menningarsvæði Ameríku og þá alsettur borgum og stórbæjum með fögr- um höllum og musterum, sem nú liggja hulin í myrkri frumskóganna. Þegar Evrópumenn komu til Ameríku; bjuggu menntaðar og allvel siðaðar akuryrkjuþjóðir í Mexíkó. Þær bjuggu í borgum og þorpum, höfðu fast ríkjaskipulag og deildust í marga ættbálka og kynkvísl- ir, sem hver hafði sinn höfðingja. Hinn drottnandi þjóð- flokkur í meginhluta landsins voru Aztekar, sem byggðu Anahuacdalinn. En þeir voru tiltölulega nýr þjóðflokk- ur í landinu og höfðu komið norðan að fyrir fáum manns- öldrum og brotið flestar aðrar þjóðir í landinu undir sig. Þeir voru hermannaþjóð líkt og Assyríumenn og Rómverjar, og alla menningu sína fengu þeir frá hin- um gömlu þjóðum, sem byggt höfðu landið frá ómuna- tíð. Fornleifafundir sýna, að menning Mexíkóþjóðanna er mjög gömul, og ætla má, að árþúsundir séu liðnar, frá því að þær tóku sér fasta bústaði og reistu borgir og þorp í Anahuacdalnum og á mexíkönsku hásléttunni. Frá upphafi hefur akuryrkjan verið aðalatvinnuvegur og maísinn verið aðalkorntegund, en auk þess hafa Mexíkómenn ræktað ertur og margs konar fleiri æti- íurtir. En þegar Spánverjar komu til landsins, höfðu Þeir ekki önnur alidýr en kalkúna, endur og hunda. í*eir höfðu ekki heldur lært að nota járnið, en höfðu vopn og verkfæri úr bronsi, eir og zinki. í húsgerðarlist Voru þeir komnir mjög langt, borgir þeirra voru stórar *ueð fögrum höllum, musterum og öðrum stórhýsum. ^eir höfðu og byggt pýramída líka hinum egypzku og Serðu sér guðalíkneskjur og höggmyndir af mikilli list. yi'estar þeirra lögðu stund á stjörnufræði og reiknuðu ut gang tungls og sólar. Þeir höfðu einnig sérstakar oókmenntir og notuðu myndaletur. Hin glæsilega menn- lTig Mexíkómanna hafði að vísu sínar skuggahliðar, en Po minni en orð hefir verið gert á. Að vísu voru mann- °lot og mannfórnir allalgengar, og var einkum fórnað