Skírnir Mexíkó 81 Allir urðu að skírast og taka upp kaþólska trú, og must- erin fornu og fögru voru rifin til grunna. Bókmenntir þjóðarinnar gleymdust og 50 árum eftir innrás Spán- verja gat enginn lesið hið forna myndaletur. Kaþólsku prestarnir gerðu allt, sem í þeirra valdi stóð, til að eyði- leggja hina fornu menningu landsins. Þeir brenndu bókasöfnum og eyðilögðu líkneskin og þvinguðu spönsk- unni upp á alla. Að vísu eru enn allmargir í Mexíkó, sem tala hinar fornu tungur, en enginn er sá, sem getur lesið myndaletrið forna, eða skýrt það, þá sjaldan að gömul bókfell hafa fundizt. í fjórar aldir laut Mexíkó Spánverjum; fyrstu 2 aldirnar voru miklar ánauðar- aldir, en er fram liðu stundir, varð allmikil breyting á bví. Hinir spönsku innflytjendur blönduðust smám sam- an frumbyggjunum, og hægt og hægt runnu þeir saman í eina þjóð að mestu. Spönsku innflytjendurnir voru aldrei fjölmennir, og vegna þess að spánskt kvenfólk var mjög ófúst að flytja vestur um haf, tóku þeir sér alltaf konu af Indíánaættum, og þannig hófst sú blóð- blöndun, sem skapaði hina nýju mexíkönsku þjóð. En hótt flestir Mexíkómenn séu enn í dag líkari Indíánum en Evrópumönnum, bera þeir þó alltaf keim af Spán- verjum. Enda þótt Mexíkó væri undirokað land, var bað aldrei svo svívirðilega leikið sem aðrar spánskar nýlendur. Margir af spönsku landstjórunum og innflytj- endunum, þar á meðal Cortes sjálfur, voru mannúðar- menn og gengu því vægar fram en landar þeirra í Suður- Ameríku, og aldrei kom það fyrir, að heilar byggðir væru eyðilagðar í Mexíkó, eins og t. d. í Perú og Chile. Sá þjóðflokkur í Mexíkó, sem var Spánverjum erfiðast- ur, voru Mayarnir, sem réðu ríkjum í Yukatan. Þeir "öfðu búið þar að minnsta kosti tvö þúsund ár. Þeir stóðu á öllu hærra menningarstigi en Aztekarnir og höfðu reist feikna borgir mitt í frumskógunum, húsgerð- arlist þeirra var frábær. Þeir stóðu og mjög framarlega 1 Jarðyrkju, og í listum, vísindum og bókmenntum stóðu Peir öllum frumþjóðum Ameríku framar. 6