90 Baldur Bjarnason Skírnir landsins. Börn landsins hafa nú tekið að sér að hagnýta sér auðlindir sínar. Landinu fleygir fram, jarðyrkjan blómgast, ný og ný akurlendi bætast við hin gömiu og aldingarðar og rækt- uð beitilönd þenjast yfir stærri og stærri svæði. Búfénu fjölgar, ný og ný þorp þjóta upp í dölum og fjallahlíð- um. Málmnáminu og olíuvinnslunni hrakar ekki, þótt Mexíkómenn sjálfir hafi tekið að sér að reka þær at- vinnugreinar. Auðæfi landsins vaxa, en auðurinn renn- ur ekki lengur í f járhirzlur útlendra höfðingja og ekki heldur í hendur iðjulausra háklerka og plantekrueig- enda, heldur í hendur þjóðarinnar sjálfrar. Hin fræga, glæsilega og starfsama mexíkanska þjóð er óðum að vinna sig upp í tölu vestrænna menningarþjóða. í æðri menningu hefir Mexíkó alla tíð staðið hátt. 1 landinu eru ágætir háskólar og margar aðrar æðri menntastofnanir. Mexíkó hefir á síðustu áratugum átt marga fræga vísindamenn í landafræði, sögu og stjörnu- fræði. Mexíkóbúar eru líka mjög listfengir og hafa átt marga ágæta hljómlistarmenn, myndhöggvara og mál- ara. Diego d,e Rivera, málarinn heimsfrægi, er Mexíkó- maður. Alþýðumenntun landsins er ekki góð, en þó betri en í flestum öðrum kaþólskum löndum og fer óðum batn- andi. Mexíkóbúar leggja mikla rækt við sögu landsins og bókmenntir, enda unna þeir manna mest ættlandi sínu. Þjóðbyltingarflokkur Cardenas, sem nú fer með völd í landinu, virðist vera alveg öruggur í sessi og mun að líkindum halda völdunum um mjög langan tíma, enda hefir hann hreinan meiri hluta. Það er mest Þjóðbylt- ingarflokknum að þakka, að Mexíkó er svo langt kom- ið á framfarabraut, sem raun ber vitni. Það var Þjóð- byltingarflokkurinn, sem hrakti harðstjórana Diaz og Huerta frá völdum og síðan hefir oft með risa- átökum ýtt landinu áleiðis á framfarabrautinni. Þjóð- byltingarflokkurinn hefir breytt Mexíkó úr hálfmiðalda-