94 Baldur Bjarnason Skírnir Mayarnir eru aðeins hálf milljón að tölu, en þeim hefir á síðustu árum fjölgað mjög ört, bæði í bæjum og sveitum Yukutanskagans, að því er virðist á kostnað hinna spönskumælandi Mexíkómanna. Meginþorri Mexí- kóbúa eru Mestizar, þ. ,e. blendingur af Indíánum og Spánverjum. Þeir eru nærri um % af íbúum landsins. Þeir eru yfirleitt hærri vexti en Spánverjar, en grann- vaxnari og veikbyggðari en Indíánarnir, ljósbrúnir á hörund með brúnsvart hár. Oft eru þeir mjög fríðir sýn- um, einkum kvenfólkið; þeir eru latari og framtaks- lausari en Indíánarnir, en oft eru þeir áhlaupamenn, ef í það fer. Þeir eru listelskir mjög, einkum söngelskir, fjörmiklir og léttúðugir. Þeir eru minni lærdómsmenn en Indíánar, en gáfaðir að ,eðlisfari. Oft eru þeir ágætir rithöfundar og ræðumenn. Síðustu tvo mannsaldrana hafa þeir ráðið mestu í landinu, á sviði menningar og stjórnmála. Yfirleitt mun mega segja, að hinir mexí- könsku Mestizar séu frekar Indíánar en hvítir menn, því að meginhluti þeirra er ekki Spánverjar, nema að % eða Ve parti. Það er líka sannað mál, að allur þorri þeirra manna í landinu, sem kallast Kreólar og telja sig afkomendur spönsku innflytjendanna, séu flestir meira eða minna blandaðir Indíánablóði; áður var tal- ið, að fimmti hver maður í landinu væri óblandaður Spánverji, en síðustu rannsóknir hafa leitt í Ijós, að að- eins V20 af íbúunum eru óblandaðir hvítir menn. Hrein- ir Indíánar munu vera tæpur 14 af landsmönnum, og allmargir þeirra hafa glatað móðurmáli sínu og tala spönsku; óblönduðum Indíánum fækkar stöðugt og spánskan vinnur hægt og hægt á, á kostnað aztekisk- unnar, en aftur á móti varðveita Mayar tungu sína, sem fremur virðist breiðast út, á kostnað spönskunnar. En Mayar eru svo lítil þjóð, að þeirra gætir ekki í svo stóru landi, sem að flatarmáli er um 2 millj. km2 með 17 millj. íbúa. Þrátt fyrir allan innbyrðis mismun, telja allir Mexí- kómenn sig eina þjóð, og eru manna þjóðræknastir, ¦