Sfcjrnir Eyðing Þjórsárdals 107 verið til muna mínni, má telja alveg víst, að kirkja hefði verið þar, og þegar til þess er litið, hversu f jarri dalur- inn er Stóra-Núpi, þá má einnig telja víst, að kirkjan í dalnum hefði verið sóknarkirkja og að þar hefði verið sérstakur prestur, en kirkjunni ekki verið þjónað neðan frá Núpi. Páll biskup myndi því hafa tekið þessa kirkju á kirknaskrá sína. Nú vitum vér, að kirkja var á Skelja- stöðum, en hún er ekki nefnd í skránni og engin önnur kirkja í dalnum. Kirkjan á Skeljastöðum var þó graftr- arkirkja og væntanlega hefir hún því verið sóknar- kirkja. Líklegasta skýringin á því, að hún ekki er talin í kirknaskránni er sú, að það sé vegna þess, að hún hafi verið affallin, er skráin var gerð, og þá lögS niður fyrir svo löngum tíma, að talið hafi verið, að hún væri fallin af fyrir fullt og allt. En sennilegasta ástæðan til þess, að kirkjan var lögð niður, er sú, að jörðin hafi lagzt í eyði, og jafnvel byggðin í dalnum í heild sinni. Ef Skeljastaðir hefðu lagzt í eyði, en byggðin í dalnum haldið sér að öðru leyti, myndi kirkjan hafa verið flutt á annan bæ,og sá kirkjustaður hefði þá væntanlega verið talinn í kirknatalinu. En svo er ekki, enda er ókunnugt um, að kirkja hafi verið annars staðar í daln- nm. Þetta virðist mér gefa sterkar líkur fyrir því, að Þjórsárdalur hafi verið kominn í auðn alllöngu fyrir 1200, að Sandártungu einni undanskilinni, sem var neðsti bærinn í dalnum. Að sönnu er kirknatalið ekki nú fylli- lega í sinni upphaflegu mynd, og þess vegna er hugsan- legt, að fallnar séu niður úr því einhverjar kirkjur, sem Þar voru taldar í fyrstu. En það er þó ekki líklegt. Svo mikið er víst, að í kirknatalinu eru taldar nokkrar kirkj- ur, er lagðar hafa verið niður svo snemma, að vér höf- um enga heimild fyrir því, að þær hafi nokkurn tíma verið til, aðra en kirknatalið. Hefir verið jafnmikil ástæða til að fella þær kirkjur niður af skránni og Skeljastaði, hafi það verið gert. Eg vil enn geta þess, að til eru máldagar kirkna, sem lögðust niður á 14. öld, svo sem Skarðs á Rangárvöllum og Rauðalækjar. Ef