Skírnir Eyðing Þjórsárdals 113 löngu síðar, að smábýli höfðu verið byggð þar um stundarsakir. Hvort tveggja þetta, sem nú hefir verið nefnt, getur hafa átt sér stað í Þjórsárdal. En það, sem mestu mun hafa ráðið um það, að byggðin lagðist niður, mun hafa verið vetrarríkið og ef til vill slægjuleysi. Það má líka v,era, að vikur- eða öskufall hafi átt nokkurn þátt í því, að dalurinn eyddist. Einhvern tíma hefir mikið af vikri fallið yfir hann, það sýna vikurhrannirnar, sem enn eru þar. En það hefir varla haft neina úrslitaþýðingu um ^yggð dalsins. Það er svo að sjá, að aska eða vikur hafi ekki orðið skaðleg byggðinni hér á landi til langframa. Víða eru í jörðu hvert öskulagið yfir öðru og lög af gróðrarmold á milli þeirra. Sumstaðar eru þá öskulög, sem ,eru svo þykk, að þau hljóta að hafa kæft allan gróð- Ur í bili, en moldarlagið ofan á sýnir, að gróðurinn hef- ir orðið yfirsterkari, er frá leið. Þar sem þannig stóð á, hafa jarðir ef til vill farið í eyði í bili vegna öskufalls- ins, en byggzt aftur, er landið fór að gróa, og það er al- kunnugt, að þannig hefir þessu verið varið eftir ýmis gos á seinni öldum. Jarðirnar í Vestur-Skaftafellssýslu, sem eyddust vegna öskufallsins í Skaftáreldunum, fcyggðust langflestar aftur innan skamms. Þjórsárdal- ur þurfti því ekki að fara í eyði fyrir fullt og allt, þótt vikur félli einhvern tíma yfir hann, enda er það sannan- legt, að gróður hélzt í dalnum langan aldur eftir að byggðin eyddist. Kolagrafirnar, sem fundizt hafa í tún- inu á Stöng, sýna, að þar hefir verið gert til kola eftir að bærinn var farinn í eyði, að túnið hefir vaxið skógi eftir að bærinn var yfirgefinn. Eg hefi áður getið um það, að kirknamáldagar sýna, að skógur var enn í daln- um á 14. öld, og yngri gögn sýna, að skógur hélzt þar lengi þar á eftir. Til eru tvær skrár um skógana í Þjórs- árdal.33) Hin eldri þeirra var í bréfabók Gísla biskups Jónssonar, og er hún því ekki yngri en frá hans dögum, en hina yngri lét Oddur biskup Einarsson rita 1615 eftir tilsögn Brynjólfs Eyjólfssonar bónda í Sandatungu og 8