Sk"Jnlr Eyðing Þjórsárdals 115 þess, aS mennirnir hafa leixits íandið ver en náttúru öflin. Síra Jón Egilsson nefnir eyðidalinn, sem hér hefir verið rætt um, Fossárdal en ekki Þjórsárdal, eins og hann nú er nefndur, og gefur þetta tilefni til þess, að athuga nafnið nokkru nánar. Eftir því, sem málvenjan er í öðrum landshlutum, ætti nafnið Þjórsárdalur að vera heiti á dal, sem Þjórsá rynni eftir, sbr. t. d. nöfnin Blöndudalur, Hörgárdalur, Laxárdalur, Norðurárdalur, Svartárdalur, sem allir eru kenndir við árnar, sem eftir þeim renna, og eru hér að- eins nefndir hinir stærstu dalir, sem slík nöfn bera, en auk þeirra mætti telja fjölda marga minni dali, sem kenndir eru við ár með sama hætti. Nú rennur Þjórsá alls ekki eftir dalnum, sem nú er nefndur Þjórsárdalur, heldur fyrir utan hann, og nafn hans er því brot á þess- ari nafngjafavenju og þekki eg ekkert dæmi hliðstætt Pví. Hins vegar er Fossárdalur réttnefni á dalnum, því eftir honum fellur á, er Fossá heitir. Þjórsá fellur að eg ^etla hvergi í dal á allri sinni löngu leið frá upptökum sínum til sjávar, og nota eg þá orðið ,,dalur" í þeirri ftierkingu, sem venjulegust er eða réttara sagt .ein er notuð í daglegu máli nú á tímum. En þess er þá jafn- framt að geta, að orðið hefir verið notað í nafngjöfum á Suðurlandi með öðrum hætti en í öðrum landshlutum. A Suðurlandi er fátt um dali. Móbergshéruðin þar eru °f ung til þess, að dalir hafi náð að myndast þar með sama hætti og í blágrýtishéruðunum í öðrum sveitum, °g orðið dalur" er notað í nafngjöfum sunnanlands ^eð þeim hætti, að það kemur mönnum úr öðrum lands- hlutum undarlega fyrir sjónir. Nefni eg sem'dæmi þessa Laugardalinn í Árnessýslu og Mýrdalinn í Vestur- Skaftafellssýslu. Þau byggðarlög myndi engum manni norðanlands eða vestan koma til hugar að nefna dali. Nafnið Þjórsárdalur kemur fyrir á nokkrum stöðum í fornritunum, oftast þó þannig, að talað er um fólk, sem sagt er að verið hafi í" eða úr" Þjórsárdal. í Glúmu 8*