116 Ólafur Lárusson Skirnir eru þannig nefndar h^jár konur í Eyjafirði, Þorkatla k'ona Þr>ri-aias króks, Oddkatla Oddkelsdóttir kona Hlenna hins gamla og Una Oddkelsdóttir kona Bárðar á Skáldsstöðum, og eru þær allar sagðar vera ,,úr Þjórs- árdal".34) I Fljótsdælu er nefnd kona Glúms á Glúms- stöðum, Þuríður Hámundardóttir, kynjuð sunnan úr Þjórsárdal".35) Landnáma telur dóttur Arngeirs land- námsmanns á Melrakkasléttu Þuríði, er Steinólfr í Þjórsárdal átti", og segir frá því, að Oddur bróðir henn- ar ,,gekk heiman ór Hraunhöfn um kveldit, en kom um morgun eftir í Þjórsárdal til liðs við systur sína, er Þjórs- dælir vildu grýta hana fyrir fjölkyngi ok tröllskap".30) Sonur Þorbjarnar laxakarls er nefndur Otkell í Þjórs- árdal".37) Ennfremur er Hjalti Skeggjason víða kennd- ur við Þjórsárdal.38) Loks er Þorbjörn laxakarl sagður hafa numið Þjórsárdal allan ok Gnúpverjahrepp allan ofan til Kálfár". Á öðrum stöðum í fornritunum hefi eg ekki séð Þjórs- árdal nefndan á nafn, og eftir að þessum heimildum sleppir hefi eg ekki fundið nafnið fyrr en snemma á 18. öld, í Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns. Af stöðum þeim í fornritunum, sem hér voru taldir, eru það aðeins einir tveir, sem gefa nokkra vísbendingu um legu Þjórsárdals. Annað er frásögn Kristnisögu, er telur leiðina frá heimili Hjalta í Þjórsárdal til sjávar liggja eftir Ytri-Rangá, og er bæði lítið á þeirri sögn að byggja og vér litlu nær fyrir hana um það, hvar Hjalti bjó. Hitt er frásögnin um landnám Þorbjarnar laxakarls. Samkvæmt henni virðist Þjórsárdalur vera fyrir norðan Gnúpverjahrepp, en þar er ekki um annan byggðan dal að ræða en Fossárdal, og nota eg þá orðið dalur í venju- legri merkingu. En því fer fjarri, að þessi heimild sé fullkomlega örugg. Það þarf ekki mikil pennaglöp til þess, að Fossárdalur verði Þjórsárdalur, og í annan stað er það ljóst, að höfundur Landnámu hefir verið ókunn- ugur í Hreppunum, að minnsta kosti eru verulegar mis-