SWrnir Eyðing Þjórsárdals 117 sagnir og villur í lýsingum hans á landnámum í Gnúp- verjahrepp.39) Hjalti Skeggjason bjó í Þjórsárdal, að því er fornrit- in segja. Á síðari tímum hefir það verið haft fyrir satt, að hann hafi búið á Skeljastöðum, og ef það væri rétt, þá væri það sönnun þess, að Fossárdalur hefði heitið Þjórsárdalur. En þessi munnmæli virðast vera mjög ung. Síra Guðmundur Vigfússon nefnir Skeljastaði í lýsingu sinni á Stóra-Núpssókn og getur þess, að þar hafi verið kirkja, en minnist ekki á það, að Hjalti hafi búið þar. I skýrslu Árna Magnússonar um eyðibýlin í dalnum er þess ekki heldur getið. Hreppamönnum virðist því ekki hafa verið kunnugt um það í upphafi 18. aldar, því að varla myndi Árni hafa undan fellt að geta þessa í skýrslu sinni, ef honum hefði verið sagt frá því. Þessi sögn hefir heldur ekki verið komin upp á dögum síra Jóns Egils- sonar. Hann talar tvívegis um Hjalta á Núpi40) í Biskupaannálunum, og getur þess, að hann hafi verið niágur Gissurar hvíta, svo ekki er um það að villast, að hann á við Hjalta Skeggjason. Hann segir, að Hjalti hafi haft bú á Sámsstöðum, og kannast því sýnilega ekki við Það, að Hjalti hafi búið á Skeljastöðum. Annars er aug- ijóst af þessu, að síra Jón hefir talið, að Hjalti hafi bú- Jð á Stóra-Núpi. Ef til vill hefir síra Jón stuðzt aðeins við munnmæli þar í sveitinni um þetta atriði, og ef svo er» þá eru þau munnmæli í öllu falli nokkrum öldum naar Hjalta en munnmælin um að hann hafi búið á Skeljastöðum og því trúlegri. En ef til vill hefir síra Jón farið um þetta eftir skriflegri heimild. Til er ágrip af Hungurvöku, sem síra Jón hefir gert.41) I 2. kap. í ágrip- Jnu er Hjalti Skeggjason sagður hafa búið ,,að Núpi í Eystrahrepp".42) Hér er tvennt til. Annaðhvort hefir síra ^ón aukið þessu við frá sjálfum sér, í samræmi við það, sern hann vissi að munnmælin í sveitinni sögðu, eða hann hefir tekið það úr því handriti af Hungurvöku, sem hann hefir gert útdráttinn eftir, en það handrit er nú glatað. Að vísu er þess ekki getið, að Hjalti hafi búið á Núpi, í