162 Sigurjón Jónsson Skírnir í dag, að ef leitað er frétta í þessar prestakallalýsingar svo er réttara að kalla þær en sóknalýsingar, því að þar sem fleiri sóknir voru en ein í prestakalli, er þeim allajafna slengt saman og lýst í einu lagi um ástand- ið í ,einhverri grein fyrir 100 árum, þá geta ekki aðrar lýsingar komið til greina en þær, sem ritaðar eru sama árið, sem spurningarnar voru sendar prestunum, og næstu ár þar á eftir. Spurningar þær, er beinlínis lúta að heilbrigðismálunum, voru 63.66. í röðinni, en auk þeirra snertu fleiri spurningar þau meira eða minna, þótt ekki verði hér kostur að gera þeim skil.1) Langflest svörin voru send tvö fyrstu árin: 42 árið 1839 og 71 ár- ið 1840. Á næstu 5 árum bættust 42 við. 1846 kom ekk- ert svar, 18471860 komu 19 svör, og eftir 1860 komu 5, það síðasta 1875. 3 svör verður ekki séð hvenær voru send. Ég tek hér ekkert tillit til þeirra svara, sem voru send eftir 1845. Að vísu eru sum hinna síðari svara ítar- legri ,en mörg hinna fyrri, og sum þeirra eru úr sömu prestaköllum, sem ófullkomnari svör höfðu komið frá áður, en samt verður ekki unnt að nota þau hér, svo að teljandi sé, því að þau lýsa ástandinu á öðrum tíma en þeim, er hér ræðir um. Af þeim 155 svörum, sem bárust fyrstu 7 árin, eru nokkur, sem alls ekki sýna lit á að svara fleiru eða færru af þeim spurningum, er að heilbrigðismálunum lúta, og önnur, sem svara þeim að vísu, en svo ófullnægjandi, að lítið eða ekkert er á að græða. Verður nánar gerð grein fyrir þessu við hvert atriði, eftir því sem ástæða þykir til. Málfæri og framsetning á svörum prestanna er nokkuð misjafnt, ,en yfirleitt til muna betra en á mörgu, er um þær mundir var prentað hér á landi, sér- staklega tímaritunum, er komu hér út þá og áratugina á undan, Klausturpóstinum og arftaka hans, Sunnan- póstinum; svipar þeim meir um málfar til rita þeirra, er Islendingar í Khöfn gáfu út um og eftir 1830, Ár- manns á alþingi og Fjölnis. Fer því fjarri, að allir þeirr er rita nú í blöð og tímarit, 100 árum síðar, hafi svo lip-