Skírnir Heilbrigðismálaskipun fyrir 100 árum 167 verða þeir taldir eftir læknishéruðum í sömu röð og þau voru talin hér á undan. 1. I vestara umdæminu í Suðuramtinu (héraði land- læknis) er getið Hallvarðar nokkurs Jónssonar í lýsing- unni úr Reykholtsprestakalli, er hafi þar lækningaleyfi. Auk þess er úr tveim prestaköllum getið um, að ein- hverjir hafi þar vit á lækningum, og þá væntanlega fá- ist eitthvað við þær, en ekki eru þeir nefndir og orða- lagið svo óákveðið, að ekki verður séð, hvort nokkrir þeirra hafa haft lækningaleyfi. 2. Syðra umdæmi Vesturamtsins. í Akraprestakalli í Mýrasýslu etí getið um einn mann, er hafi læknisleyfi að fara með lækningar", en ,ekki er hann nafngreindur. 1 Hvammsprestakalli í Dalasýslu er getið tveggja presta þar í sýslunni, er fáist við lækningar, hvörra hjálp mörgum að haldi kemur". Eru það séra Þorleifur Jóns- son í Hvammi og séra Bjarni Eggertsson á Kvenna- brekku. Ekki er þess beinlínis getið, að þeirhafi haft lækningaleyfi, ,en líkast til hefir svo verið. 3. Nyrðra' umdæmi Vesturamtsins. Þar verður ekki séð, að neinn hafi haft lækningaleyfi, og úr sumum Prestaköllum er það tekið fram, að enginn hafi lækn- ingaleyfi þar nema fjórðungslæknirinn, þótt menn hafi hans engin not vegna fjarlægðar. 4. Norðlendingafjórðungur, vestara umdæmið. í lýs- ingu úr Fagraness- og Sjávarborgarsóknum (8. febr. 1840, séra Jón Reykjalín) er getið um 2 menn, er selji »meðul frá fjórðungslækninum fengin og líklega með hans lofi eðá þegjandi samþykki brúkuð". Ekki eru þeir nafngreindir, og ekki er laust við, að andi heldur kalt "til a. m. k. annars þeirra, en aftur á móti er fremur lof- lega getið hins þriðja, sem ,er einn fátækur bóndi inn- an Borgarsóknar, náttúraður til að hjálpa mönnum og skepnum og leita hægðar í sjúkdómstilfellum" o. s. frv. Má ráða það af lýsingunni, að tveir hinir fyrr töldu hafi haft einhvers konar lækningaleyfi, en sá síðast nefndi ekki. I lýsingu úr Reykja- og Mælifellssóknum (24. okt.