Skírnir Heilbrigðismálaskipun fyrir 100 árum 169 ins og Sveins Pálssonar, sem var farinn að heilsu og lézt 1840, eins og áður var getið, voru þar taldir 4, er höfðu lækningaleyfi, auk nokkurra, er höfðu aðeins blóðtöku- leyfi. 1. 1 Eyvindarhólaprk. (13. jan. 1840) : Magnús Jónsson, bóndi á Hólakoti, hefir leyfi frá viðkomandi fjórðungslæknir til að taka blóð og fjálgrast (sic!) við sár og óstóra sjúkdóma". 2. í Stóradalssókn (1840) er einn blóðtökumaður og sáralæknir, sem þar til leyfi hefir haft af viðkomandi chirurgus". 3. I Krossprk. (1840) er séra Björn Þorvaldsson talinn hafa lækninga- leyfi. 4. í lýsingu úr Hraungerðisprk. (1841) kveðst presturinn, séra Sigurður Gíslason Thorar.ensen, hafa fengizt við lækningar um 30 ára tíma, í f jarlægð réttra lækna, að leyfi þeirra og tilmælum". Það er auðséð, að Skúli Thorarensen, er þjónaði þessu embætti, hefir verið talsvert örari á lækningaleyfum en embættisbræð- ur hans annars staðar, en einkum er áberandi, hve marg- ir hafa haft blóðtökuleyfi í héraði hans. Auk þeirra tveggja, er nefndir voru og höfðu blóðtökuleyfi, auk nokkru víðtækara lækningaleyfis, eru taldir 5 blóðtöku- nienn í héraði hans: I Árbæjarprk. (1840) eru taldir 2, »,er leyfi hafa til að opna æð". í Þingvallaprk. er getið um 1 blóðtökumann, er landlæknir kenndi að taka blóð að bón pr.estsins (séra Björns Pálssonar, lýsingin dags. 5. febr. 1840), og í því trausti er hann þar til brúkaður í upp á komandi hviðu sjúkdómum". Enn er talinn 1 blóðtökumaður í Keldnaprk. (1840) og 1 í Breiðabóls- staðarsókn í Fljótshlíð (1844) ; ekki er þess getið um bá, hvort þeir hafi haft blóðtökuleyfi, en að líkindum hefir svo verið. Úr héraði landlæknis er getið blóð- tökumanna í Garðaprestakalli (til' eru þar blóðtöku- uienn") og Fitja- og Lundarsóknum (stöku handlægn- ir menn taka blóð"), en ekki hvort þeir hafi haft blóð- tökuleyfi, en telja má það líklegt. Enn er getið blóð- tökumanna í 2 prestaköllum í syðra umdæmi Vestur- anitsins, eins í Strandasýslu og eins í Tjarnarsókn í Húnavatnssýslu (tekur presturinn Ögmundur Sig-