Skírnir Heilbrigðismálaskipun fyrir 100 árum 171 Eyjafjöllum er spurningunni um læknaskipun ekki svar- að, en í svari viS 37. spurningu (um bjargræðisvegi, hlunnindi o. s. frv.) er þess getið, að kályrkja sé mikil, einkum undirjarðarkál" (líkl. gulrófur), og svo kem- ur þessi klausa: Af enni miklu kálbrúkun hafa skottu- læknar' hér (auðkennt af mér) ímyndað sér, að orsakað- ist hin mikla innanveiki og vatnssýki, sem hér virðist svo almenn" en presturinn (séra Markús Jónsson) held- ur þó, að hún orsakist líklega eins mikið af þröngum og óhollum húsakynnum og slæmu loftslagi, sem hér er algengt". Loks segir í lýsingu úr Selvogsprk.: Menn leyfa sér sjálfir að hjálpa hver öðrum í og með því, sem mögulegt kynni vera". En vafalaust hafa skottulæknar verið miklu víðar, því að Schleisner telur skottulækn- ingar mjög algengar hér á landi litlu síðar en hér var komið. Orsökin til þess, að þeirra er ekki víðar getið, má ætla að hafi verið sú, að það gat verið varasamt fyrir skottulæknana, að í hámælum væri haft um störf þeirra; það gat sem sé bakað þeim fjárútlát og fleiri vandræði, ef hinir skipuðu læknar fengju vitneskju um lækningastarfsemi þeirra, sem prestarnir munu þó yfir- leitt hafa talið betri en ekki neitt. Þetta kemur berlega fram í svarinu úr Stærra-Árskógssókn (1839, séra Há- kon J. Espólín) : Ei er hér í sókn læknir eður neinn, sem hafi leyfi til þess, og þótt nokkur vildi leggja sig þar eftir, mundi tregt um að fá tilsögn eður aðstoð í því hjá þeim, sem betur eiga að vita í því efni, svo það reyn- ist hér í sýslu, að þeir, sem til þessa eru vel hæfir, fá þar fyrir mótföll þung". Orðalagið útilokar engan veg- inn, að þarna sé fengizt við lækningar án leyfis, g.etur jafnvel vakið grun um, að prestur eigi sjálfur hlut að máli. tJr einum 4 prestaköllum er það tekið skýrt fram °g ótvírætt, að þar fáist enginn við lækningar (Reyni- vallaprk.: Enginn hefir hér vit á lækningum"; Staðar- sókn á Snæf jallaströnd: Engir eru þar skottulæknarar"; Ospakseyrarprk.: Enginn, sem fæst við lækningar, hvorki með leyfi eða utan leyfis"; Húsavíkursókn: Ei eru hér