Skírnir Heilbrigðismálaskipun fyrir 100 árum 373 mesta lagi 26, lærðar yfirsetukonur. Ein er sem sé líkast til tvítalin, því að sennilegt er, að sjötug yfirsetukerl- ing", sem talin er í Borgarprestakalli á Mýrum, sé sú hin sama, sem talin er í Álftártunguprestakalli (næsta prk. við Borgarprestakall) og þar er nefnd afgömul yfirsetu- kona, eiðsvarin". Úr yfir 100 prk. er það beinlínis tekið fram, að þar sé engin skipuð yfirsetukona ýmist kallað ,,lögskipuð", yfirheyrð", examíneruð" eða eiðsvarin" en í mörgum þeirra er getið um konur, er hafi leyfi eða séu kosnar" til ljósmóðurstarfsins. 1 sumum prestaköll- unum voru þær kosnar" af presti og prófasti, í öðrum af presti og meðhjálpara, af presti og hreppstjóra eða af prestinum einum. "Or einu prk. er þess getið, að þar séu 2 yfirsetukonur, sín í hvorri sókn, skikkaðar" af prestin- um með ráði meðhjálpara og hreppstjóra. Sums staðar er sagt, að yfirsetukona sé kosin, en ekki tilgreint, hver kaus eða hverjir. Sums staðar er þess getið, að engin hafi leyfi, en samt leyfa þær sér þá iðn", segir á einum stað, og nauðsynin gefur og krefur leyfi í þeim tilfellum", segir á öðrum. Yfirleitt verður ekki séð, að amazt væri við starfi ólærðra yfirsetukvenna, þótt ekki væru þær kosnar" eða hefðu formlegt leyfi. Þeim, er hafa vilja, lag og náttúru til þeirrar iðnar, er engum meinað að fremja hana", segir í lýsingu úr Eiðaprestakalli (1841), og svipað er víðar komizt að orði. Á stöku stað er getið um karlmenn, er fáist við ljósmóðurstörf. Hinar skipuðu eða yfirheyrðu" yfirsetukonur skiptast þannig í læknahéruðin: I héraði landlæknis voru 6 (2 í Gullbr.- og Kjósarsýslu, 4 í Borgarf jarðarsýslu); í syðra héraði Vesturamtsins 5 (eða 4, sjá hér á und- ar0 ; í nyrðra héraði Vesturamtsins 1 (í Stranda- sýslu); í héraði Jósefs Skaftasonar 1 (í Húnavatnssýslu); í austurhluta Norðlendingafjórðungs 4 (2 í austanverðum Skagafirði og 2 í Eyjaf jarðarsýslu); í Austfirðingaf jórð- ungi engin; í eystra umdæmi Suðuramtsins 7 (2 í Vestur- Skaftafellssýslu, 3 í Rangárvallasýslu og 2 í Ámessýslu). Loks voru 2 í Vestmannaeyjum. Auk sjálfrar fæðar