182 Sigurjón Jónsson Skírnir að 7. hver maður á landinu muni vera sullaveikur, og tel- ur Schl., að það muni sízt of hátt reiknað (bls. 15). Eftir því hefðu átt að vera hér yfir 8000 sullaveikir fyrir 100 árum. Nú orðið finnst aðeins einn og einn sullaveikissjúkl- ingur hér og hvar á stangli, og í sumum læknishéruðum verður sullaveiki ekki vart árum saman; má því telja, að ekki vanti nema herzlumuninn til þess, að henni verði út- rýmt til fulls. Þá kemur barnaveiki og kíghósti. Ég tel þessar sóttir saman, því að sums staðar verður ekki séð með fullri vissu við hvora þeirra er átt, en oftast ætla ég að það muni vera barnaveiki (diphtheria).7) Þrisvar er talað um and- arteppuhósta, en það er gamalt nafn á kíghósta, hefir þó víst stundum líka verið haft um barnaveiki, þegar hún hefir valdið andþrengslum. í 2 skiptin af þessum þremur er sagt, að veikin hafi gengið árum saman, og bendir það frekar á barnaveiki, því að varla kemur það fyrir, að kíg- hósti gangi árum saman í sömu sveitum, allra sízt, þegar engum sóttvörnum er beitt, er hafi tafið för hans. í lýs. úr einu prestakalli (Norðtunguprk. 1840) er sagt, að börn fái oft ,,kíg- eða andarteppuhósta" og er þar sjálfsagt átt við kíghósta, þótt vel geti verið, að um báðar sóttirnar hafi verið að ræða og presturinn ruglað þeim saman. 1 eitt skipti er sóttin eingöngu nefnd angina polyposa, eh það er latneska heitið á barnaveiki, sem læknar notuðu þá. Tvisvar er hún kölluð andarteppa (ang. polyposa í svigum annað skiptið), 8 sinnum barnaveiki (einu sinni ang. polyposa í svigum og einu sinni Catarrhus suffoca- tivus) og einu sinni barnasóttin. Loks eru í eitt skipti barnasjúkdómar taldir ásamt landfarsótt og kvefsótt til yfirgeysandi sjúkdóma", og er þar vafalaust átt við barnaveiki eða kíghósta eða líkast til hvort tveggja- Að ekki er getið um þessar sóttir víðar, hlýtur að konia af því, að nál. engir prestanna hafa talið þær, nema þær hafi gengið í prestaköllum þeirra, þegar lýsingin var rit- uð, eða mjög skömmu á undan, því að annars staðar fra e.r vitað, að þær voru miklu algengari um þessar mundir