Skírnir Heilbrigðismálaskipun fyrir 100 árum 185 Valþjófsstaðaprk., sú hin sama, er ein allra lýsinganna nefnir tæringuna. Styður þetta óneitanlega þá áætlun, að sú sjúkdómsgreining prestsins (séra Stefáns Árnasonar) hafi ekki verið alveg út í bláinn, því að, eins og kunnugt er, veldur berklaveiki líka oft eitlabólgu. Og það er varla vafamál, að eitlabólga hefir verið áberandi tíð þarna, úr því að það þótti taka því, að nefna hana. Schleisner segir (bls. 3) að kirtlaveiki (Schrophulose) sé fátíð í landinu, og eiginlega hvergi til, nema í einstaka f jölskyldu í Reykjavík og í Múlasýslum, en þar, einkanlega í Fljótsdalshéraði, megi hún heita algengur sjúkdómur meðal barna á flestum heimilum.1) Þetta, í sambandi við það, að tiltölulega oftast er getið um brjóstveiki í Austfirðingafjórðungi, gæti bent á, að þar hafi eitthvað af brjóstveikinni verið berklaveiki víðar en í Valþjófsstaðarprk., og að berklaveikin hafi einna fyrst náð fótfestu á Austfjörðum. En engin tök eru á að rannsaka það hér svo, að nokkuð verði um það fullyrt. 'Ginklofa (trismus neonatorum) er getið í 14 prk., og má ætla, að hans, eins og holdsveikinnar, sé getið alls stað- ar, þar sem hans hefir orðið vart, af því að sérstaklega var um þessa sjúkdóma spurt. Eins og kunnugt er, voru Vestmannaeyjar aðalheimkynni hans. 1 lýsingunni þaðan er tafla yfir fædd börn og dáin úr ginklofa um nokkurt árabil. Sést á henni, að á 5 ára tímabilinu 18381842 fæddist 101 barn í prestakallinu, og af þeim dóu 72 úr ginklofa. Auk þess segir í lýsingunni, að ósjaldan hafi eldri börn dáið úr ginklofa, upp til 6 ára aldurs, og stund- u*n hafi hann lagt í gröfina fulltíða fólk á öllum aldri. Má af þessu ráða, hvílík drepsótt þetta var. Auk Vestmanna- eyja er ginklofa getið í 13 prestaköllum, öllum nema einu í nágrenni við eyjarnar, nefnilega í einu prk. í Vestur- Skaftafellssýslu, 7 prk. í Rangárvallasýslu,9) 3 prk. í Ár- nessýslu og 1 prk. í Gullbringusýslu, og loks í einu prk. í ísafjarðarsýslu. Þar er hann nefndur ásamt holdsveiki, og sagður sjaldgæfari en hún. Vestmannaeyjapresturinn 1) Auðkennt af mér.