Skírnir Heilbrigðismálaskipun fyrir 100 árum 187 ¦slensótt, og aftan við sjúkdómsheitið er í svigum febr(is) rheumat(ica)". En það er latneska heitið á gigtsótt eða bráðri liðagigt. Hvort líka er átt við gigtsótt á hinum stöðunum, eða eitthvað annað, t. d. taklungnabólgu, eða -ef til vill stingsótt (pléuritis epidemica), verður ekki séð með vissu, því að svo er að sjá, sem notkun þessa sjúk- dómsheitis hafi verið nokkuð á reiki. Sveinn Pálsson (1. c.) lætur það þó þýða gigtsótt. Gigtfeber" er nefndur í aðeins einni lýsingu, og er þar sennilega um gigtsótt að ræða. Kláði er nefndur í 5 lýsingum, og í þeirri sjöttu óbein- línis, þar sem sagt erfrá laug með brennisteins málm- blandaðan smekk", er gigtveikt og kláðafullt fólk" laugi sig í (Valþjófsstaðaprk. 1840). I lýsingu úr Stöðvarprk. 1839 (eftir séra Magnús Bergsson, föður Eiríks Magnús- ¦sonar, bókavarðar í Cambridge) er þannig lýst meðferð á kláða, eins og hún tíðkaðist þar: Við kláða er almennt brúkaður smámulinn brennisteinn, fyrst tekinn inn til að bleypa kláðanum út, síðan hnoðaður út í smjör áborinn, líka er seyði' úr heimulu haft til að þvo kroppinn, og líka inn tekið í mót kláða. Loks er og túnasveppur, úr hvörj- um að verður svonefndur kerlingareldur, tekinn og brúk- aður sem kláðameðal þannig: Að hann er nýr látinn á vegglægju í hlýju húsi, hvar í hann hleypur ger, og þegar það hvíta í honum er orðið við grænt og meyrt og mjúkt sem smjör, er því riðið á kláðann, og sagt eitthvört bezta meðal við honum". Vafalaust hefir kláðinn verið miklu tíðari en um er getið, fæstir líklega talið hann til sjúk- dóma fremur en lús, sem auðvitað er hvergi nefnd. Schl. Segir, að kláðinn muni vera æði tíður, og að alþýða hafi áður talið hann vörn við öðrum sjúkdómum. Eftirtektar- vert er það, að á þeim eina stað, sem kýli eru talin algeng °S í 3 af 4 lýsingum, sem nefna heimakomu, er líka get- ið um kláða meðal almennra sjúkdóma". Náttúrlega get- ur þetta verið tilviljun, en það getur líka vakið grun um, að einatt hafi þarna verið samband á milli: að kýlunum °g heimakomunni hafi valdið smitanir um rispur eftir