Skýrslur og reikningar Bókmenntafélagsins árið 1939 Bókaútgáfa. Árið 1939 gaf félagið út þessi rit, og fengu þau þeir félagsmenn, sem greiddu lögákveðið árstillag til félagsins, 10 krónur: Skírnir, 113. árgangur .......................... kr. 12,00 Safn til sögu íslands og íslenzkra bókmennta, VI., 7. 9,00 Jón Halldórsson, prófastur í Hítardal, eftir Jón Helgason, dr. theol., biskup .................. 9,20 Samtals ......kr. 30,20 Enn fremur var prentað: fslenzkt fornbréfasafn, XIII., 7.................kr. 6,60 Er það lokahefti XIII. bindis, registur m. m. Fá áskrifendur það fyrir kr. 4,50. Sbr. enn fremur bókaskrá félagsins. ASalfundur 1940. Árið 1940, mánudaginn 17. júní, kl. 9 að kveldi, var aðalfundur Bókmenntafélagsins haldinn í lestrarsal Landsbókasafnsins. Forseti setti fundinn og stakk upp á herra bókaverði Benedikt Sveinssyni sem fundarstjóra. Var uppástunga forseta samþykkt. 1. Þá skýrði forseti frá því, hverjir látizt hefðu af félagsmðnn- um síðan á síðasta aðalfundi, og voru þeir þessir: Andreas Heusler, prófessor og dr. phil. et jur., Arlesheim í Sviss, Einar Benediktsson, fyrv. sýslumaður, skáld, Herdísarvík, Nicolaus Mathias Gjelsvik, prófessor, dr. jur., Ósló, Paul Verrier, prófessor, dr. phil., París, og Waldemar Christoffer Br0gger, prófessor, dr. phil., jur. et sc, Osló, heiðursfélagar; Árni J. Árnason, bankaritari, Reykjavik, Bjarni Einarsson, fyrv. prófastur, Reykjavík, Bjarni Ólafsson, skipstjóri, Akranesi, Eiður S. Kvaran, lektor, dr. phil., Greifswald, Friðbert Friðbertsson, skólastjóri, Suðureyri, John Fenger, fyrv. aðalræðismaður, stórkaupmaður, Reykjavík,