Skírnír Skýrslur og reikningar III Forseti til 1942 var kosinn dr. Guðmundur Finnbogason með 185 atkvæðum. Varaforseti til 1942 var kosinn Matthías Þórðarson þjóðminja- vörður með 179 atkvæðum. I fulltrúaráð voru kosnir: Ólafur Lárusson prófessor til 1946 með 167 atkvæðum og dr. Þorkell Þorkelsson til 1946 með 160 atkvæðum. . Ýmsir aðrir fengu 5 atkvæði og þaðan af færri". Greidd gild atkvæði 191. 6. Þá tók fundarstjóri, hr. bókavörður Benedikt Sveinsson, til máls og þakkaði stjórninni fyrir, hve vel hún héldi í horfinu um útgáfu þjóðlegra og nytsamlegra, alíslenzkra bóka. Bað hann fund- armenn taka undir orð sín og votta stjórninni traust og þakklæti. Gerðu fundarmenn það með því að standa upp. í sambandi við þetta bar hr. Eggert P. Briem fram þá ósk, að stjórnin reyndi að halda betur í horfinu fjárhag félagsins. Hr. Steinn Dofri fór nokkr- um vel völdum orðum um útgáfu bóka hér á landi á síðustu árum, bæði félaga og einstakra manna. Hr. Jón Normann Jónasson kenn- ari tók í hinn sama streng og ræddi einkum um léttvægi ýmsra þeirra rita, er nú væri dreift út meðal almennings. Kvaðst hann bera það traust til Bókmenntafélagsins, að því mætti takast að ráða hér bót á með starfsemi sinni. Tóku nú fleiri til máls um þetta. Hr. Steinn Dofri lagði til, að reynt yrði að fá því framgengt, að bókaútgáfa fyrir fé úr Menningarsjóði kæmi meira undir Bók- menntafélagið eða stjórn þess. Loks tók forseti til máls og fór nokkrum orðum um bókaútgáfu félagsins og tilraun stjórnar þess til að auka félagatöluna og bæta fjárhag félagsins. Þá var fundargerð lesin upp og samþykkt, og síðan var fundi slitið. Benedikt Sveinsson. Matthías Þórðarson. Reikningur yfir tekjur og g jöld Hins íslenzka Bókmenntafélags fyrir áriS 1939. T e k j u r: 1. Styrkur úr ríkissjóði .......................... kr. 2800,00 2. Tillög félagsmanna 1939: a. Greidd ........................... kr. 7940,86 b. Ógreidd ........................... 1572,00 --------------------------9512,86 Flyt kr. 12312,86