Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

1. maķ blašiš

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



1. maķ blašiš

						1.   MAÍ-BLAÐIÐ

án baráttu og starfs. Andstaðan gegn sam-

eiginlegum hagsmunamálum alþýðunnar

hefur á öllum tímum verið hörð og einmitt

nú síðustu dagana sérlega hörð, bein árás

á lífskjör alls almermings.

Það er því augljóst, að nú er þörf fyrir

hvern og einn einstakling, ekki síður en

félagsheildir, að standa þétt saman um

sameiginleg hagsmunamál, bæði sín og þá

um leið þjóðarinnar. Því er leiðin þessi, og

ég skora á hvem og einn að fylkja sér um

hana: Stöndum saman undir merki verka-

lýðshreyfingarinnar!

Jón Siaurðsson.

Félag vörubílaeigenda

in á það stig, að eigi er annað sjáanlegt, en

ef svo áfram heldur, sem nú horfir, þá muni

hrun atvinnuveganna á næsta leiti.

Samningsfrelsi verkalýðssamtakanna er

takmarkað, og hver árásin annarri meiri

gerð á lífskjör alþýðunnar, og hin síðasta

þó öðrum svæsnari, því gengislækkunarlög-

in eru að leiða fátækt og eymd yfir alla

launþega landsins.

Þess vegna er það, að krafan um að breytt

verði um stefnu í málefnum íslenzku þjóð-

arinnar, ber hæst 4 þessum degi verka-

lýðsins.

Nú þarf alþýðan að snúast til varnar með

öllum mætti samtaka sinna, hefja sókn fyrir

bættri lífsafkomu og brjóta þau öfl á bak

aftur er hefta vilja framgang verkalýðshreyf

ingarinnar og stöðva vilja viðleitni hennar

Við 1. maí eru tengdar margar helztu

minningar og vonir verkalýðsins um víða

veröld.

Þessi dagur er dagur baráttunnar og

sóknarinnar fram á leið.

Barátta okkar vörubílstjóra er mörkuð og

hnitmiðuð kjarabarátta eins og annarra

verkalýðsfélaga, og hefur á síðari tím-

um snúizt öðru fremur um atvinnuaukn-

ingu vegna langvarandi og alvarlegs at-

vinnuleysis, sem til þessa hefur herjað með

lamandi þunga meira á vörubílstjóra en

aðrar stéttir þjóðfélagsins.

Um leið og við tökum undir og setjum

fram hinar sameiginlegu kröfur dagsins

leggjum við þó megináherzlu á kröfuna

um útrýmingu á öllu atvinnuleysi.

Vörubílstjórar, munið að samtökin eru

það afl, sem eitt dugar til að koma baráttu-

málunum fram.

Komið því allir og takið þátt í kröfu-

göngunni og útifundinum.

Sýnum mátt samtakanna.

Þorsteinn Auðunnsson.

V.mi. Hlíí

í öllum löndum, þar sem þjóðirnar njóta

nokkurs frelsis, er 1. maí hátíðlegur haldinn.

Þessi dagur er fyrst og fremst sam-

eiginlegu kröfudagur verkalýðsins, dagur

baráttu og sigurvona hvarvetna um heim.

En hann er einnig og ekki síður dagur reikn

ingsskilanna.

Fyrsta maí lítur verkamaðirrinn yfir

brautina að baki sér, dregur ályktanir af

óförunum og stælir viljann til nýrra átaka.

Að þessu sinni rennur dagur alþýðunnar

upp á alvarlegum tímamótum í sögu ís-

lenzkrar verkaýðshreyfingar.

Stöðug og örugg sókn í kjaramálum hef-

ur verið stöðvuð af hálfu andstæðinga verka

lýðsins með aðstoð og undir forustu fjand-

samlegra ríkisstjórna.

Góðæri undanfarinna ára er liðið fyrir

úrræðaleysi, vesaldóm og óstjórn valdhaf-

anna. Kreppa í atvinnu- og fjárhagsmálum

þjóðarinnar hefur hafið innreið sína með

sínum venjulegu fylgifiskum, stórfelldri

dýrtíð og atvinnuleysi og er nú þegar kom-

til að skapa skilyrði fyrir mannsæmandi lífi

launþeganna.

Verkamenn sem aðrir meðhmir verka-

lýðssamtakanna verða að heitstrengja það

nú 1. maí að linna ekki sókninni fyrir bætt-

um kjörum og afnámi allra kjaraskerðing-

arákvæða, hvort sem þau birtast í gengis-

lækkun eða öðru fyrr en náð er þeim laun-

um, sem nauðsynleg eru verkalýðnum til

að geta lifað menningarlífi og stóraukinni

hlutdeild í loggjafarvaldi og stjórn landsins.

Sá, sem ekki vill atvinnuleysi, skort og

áþján, blekkír sjálfan sig, svíkur sjálfan sig,

ef hann bregzt í þeirri baráttu.

Með þetta efst í huga mætum við til móts

undir fánum alþýðusamakanna 1. maí 1950.

Hermann Guðmundsson.

Kröfur dagsins eru

i

-:

:>

¦

í

Burt með gengislækkunarlögin

Stöndum vörð um sjálfstæði íslcmds

Eflum neytendasamtökin

Verndum 8 stunda vinnudaginn

Niður með dýrtíðina

Eflum iðnaðinn í bænum

Meiri byggingar fyrir alþýðuna

Fullkomið íþróttasvæði fyrir æskuna

Eflum einingu innan alþýðusamtakanna

Fullkomnar alþýðutryggingar

Iðnskólinn verði dagskóli

Aukin iðnfræðsla

Nýtt verkamannaskýli

Sömu laun fyrir sömu vinnu

Fullkomin höfn

Bærinn eignist nýtízku fiskiðjuver

Fullkomin iðnlöggjöf

Nýjar og fullkomnar verbúðir

Starfsmenn bæjarins krefjast verkfallsréttar

Starfsmenn bæjarins krefjast réttlátra launa

Leikvelli fyrir börnin

Léttið störf konunnar, aukna framleiðslu

heimilisvéla

Burt mð áfengið úr landinu

12 stunda hvíld hjá sjómönnum

Aukna bæjarútgerð

Endurnýja og auka skipaflotann

Aukið matvælaeftirlit

Aukið öryggi á sjónum

Aukin barnavernd

Menningarheimili fyrir æskuna í bænum

Aldrei framar atvinnuleysi

Meiri og betri mjólk í bæinn

Afnám helgidaga- og næturvinnu

Fullkomið sjúkrahús

Styðjið og eflið verkamannabústaði

Auknar brunavarnir

Aukið hreinlætiseftirlit í bænum

Lifi A.S.Í.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4