6______________________________1. MAÍ______________________________ stefna. Og því átti það að vera svo hættulegt að kjósa jafnaðarmenn. Ef nu að þessum mönnum væri alvara, og þeir væru yfirleitt nokkuð annað en hræsnarar, þá hlyti þetta einhverntíma að sjást af verkum þeirra. Pví verk þeirra bera ekki vott um að þeim farist að svara öðrum um trúleysi, lítum á stefnurnar. Jafnaðarmenn vilja bæta kjör fátækustu stjett- anna. Jafnaðarmenn vilja að allir hafi það er þeir þurfa, að ölluiu sje hjúkrað þegar þeir þurfa. Að allir fái þá mentun, sem er nauðsynleg fyrir iíiið. Að mentun fari eftir gafuin en ekki eftir peningum. Að fólkið fái að halda hvildardaginn heilagan, og hvilast um nætur sem vinna á daginn. Ekkert af þessu vilja »burgeisarnir« og sísl vitja þeir lofa fólkinu að halda hvildardaginn helgan. i'eir láta vinna á hvaða stóthátiðisdegi sem er, og yfirleitt vilja þeir láta fólkið vinna þegar það hentar fyrir þá, hvort það er á jólanótt, páskadag eða föstudaginn langa eða um miðjar nætur eða á sunnudögum. Það láta þessar trúarhetjur I! sig litlu skifta. Og svo kæra þeir sig heldur ekkert um að fólkið hafi vinnu þar fyrir utan. Nei, bara þeir sjálfir geti grætt i friði þá er sama um hvernig þeim, sem gefa þeim allan gróðann, líður. Nei, góðir hálsar, hættið að stæra ykkur af trúnni og kær- leikanum til náungans. Og við næstu kosningar gæti ég hugsað að þið yrðuð að láta prest- ana segja eitthvað annað ykkur til hróss, en það, að þið sjeuð í samræmi við trúna. Annars væri skemtilegt að láta þá, þ. e. prestana, sem þið hafið haft í þjónustu ykkar halda nokkrar ræður um, hvernig þið farið að þvf að haida hvildardaginn heilagan. Og hvað af verkum ykkar beri mestan vott um trú. ^VertíöarloIs. Vetrarvertíðin er að enda, þessi erfiöi tími ársins fyrir sjómenn og verkalyð og gróðatími fyrir hina fáu eigendur atvinnutækjanna. Aðeins þeir, er sjómensku hafa stundað, eða stunda, geta gert sér í-hugarlund, hve af- skaplega mikið sjómennirnir leggja í sölurnar. Og fjöldi manna eru svo skammsýnir að skilja ekki það, að sjómennirnir sjálíir og verkalýðurinn eiga að njóta ágóðans eiga að ráða hvernig þvl fé, er þeir afla er varið. Þeim skilsl ekki einu sinni, að þeir þurfi og eigi að hafa sæmileg laun. Þessi ver- tið, sem svo margar undangengnar, hefir kostað marga vaska drengi lífið. Við vitum, að það eru tugir hraustra drengja sem druknað hafa á þessari vertið, og þó hafa það oft verið fleiri, er mist hafa lífið. Við vitum um fjölda kvenna og barna er mist hafa föður og eiginmann. Og hvernig launar svo þjóðfélagið? Við þekkjum það. Konan og börnin komast á vonarvöl, og eru svift mannréttindum iyrir þær einu sakir (!!) að maðurinn lét lifið í þarfir þjóð- félagsins. Góð borgun og mannúðleg!! Samboðin því þjóðfélagsskipulagi, sem við hu Iifum undir. Tökum dæmi, kona missir mannínn sinn í sjóinn og stendur ein eftjr