8_________________________________1. MAÍ__________________________________ gilda hér. Það helír ekki gert neina tilraun til að losa þjóðina við áfengis- böiið. Pað heíir ekki hert á landhelgislögunum svo að fátækir menn gætu haft veiðarfærin sin í friði til að ná sér í björg handa svöngu skilduliði. Það hcfir ekkert gert sem að gagni megi koma til að hækka gengi islensku krónunnar og minka dýitíðina. Það hefir ekkert gert til að tryggja smærri framleiðendum þaö, að þeir fái sannvirði fyrir fiskinn sinn eöa síldina, þvert á móti drap það frumvarp, sem átti að bæta úr þvi. Það hefir ekkert gert tii að bæta úr hinu mikla atvinnuleysi, sem almenningur í sjávarþorpunum á við að stríða, þvert á móti hefir það aukið það með því, að ætla ekkert á fjárlögunum til verklegra framkvæmda. Það hefir neitað takmarkaðri rímk- un á fiskiveiðalöggjöfinni til þess að auka atvinnu og framleiðslu i lardinu. Það hefir ekkert gert til að koma upp sildarverksmiðjú til öryggis við þá atvinnugreih. Það hefir ekkert geit til að auka sjúkratryggingar. Ekki minnst á Iandsspitalann. En einstaka þingmenn hafa haft á orði að draga úr þeirri sjúkrahjálp er rikið veitir á Vífilstaðahæli. Enn mætti lengi halda á- fram að telja það, sem þingið hefir ekki gert, en hefði átt að gera, en hér skal staðar numið að sinni. En hváð befir þá þingið gert, fyrst það hefir svo mjög brugðist því, sem það átti að gera? Það hefir hækkað skatta og tolla, sem þyngst kemur niður á fátækri alþýðu. Það hefir samþykt eitthvað af nýjum pappirslögum, numið úr gildi lög, sem samþykt voru á siðasta þingil! o. s. frv. Eitthvað verður að gera til að lengja vertiðina. Þá hefir það eytt löngum tíma og ærnu fé til að tala um að sparal! Enn alt það skraf befir orðið að óíarnaði. Það hefir t. d. taJað um að afnema nokkur embætti, enn það hefir eytt því, sem svaraði laununum um eitt ár, enn ekki afnumið embættin!! Pá hafa hrossakaupin náð hámarkinu nú. Á sama tima, sem hæst lætur í sparsemdarlómunum, eru þeir að verzla með embætti, sem kosta tugi þúsunda. Eftirlaun eru innleidd handa einstaklingum alveg út í bláinn eða bara af »pólitískum klíkuskapct. Svona er ástandið á þessari ytírstandandi vertíð þingsins og þessu eru allir þingmenn samsekir, nema einn, jafnaðarmaðurinn, sem þar situr, en fær fáu fram komið, sem ekki er heldur von. Og svona verður það þangað til að Alþýðuftokkurinn fer að eiga sterkan þingflokk og það verður bráðlega. yfslensk alþýða hlýtur að fara að vakna til meðvitundar um rétt sinn og máíf. Enskir jafnaðarmenn fara nú með stjórn þar f landi, og nú eru danskir jafnaðarmenn líka við stjórn þar í landi, og í Rússlandi hefir al- ' þýðan ráðið síðustu 6 árin. í dag gengur stjórn Bretlands i broddi fylking- ar í kröfugöngu verkalýðsins. f dag gerir rikisstjórn Dana hið sama. í Russ- landi er lögskipaður frídagur. Hve nær getum við fagnað sama sigri. Því fyr þess betra. Við færumst altaf nær og nær því takmarki. Verum sókn- hörð og samtaka og sigurinn er vis. F. G. Kröfugöngnnefnd 1, Maf lfl24: Felix Guömundsson, form. Rósinkrans ívarsson, ritari, Guðm. Oddsson, gjaldkeri. Sigrún Tómasdóttir, Sigurður Guðraundsson. Reykjavik Prentsmlðjan Gutenberg h.f. 1924.