VALSBLAÐIÐ 1939-1940 Hin stöðuga þróun í félagslíf- inu og á sviði knattspyrnunnar, sem svo einkennandi hefir vei-ið fyrir félag okkar síðustu tvo ára- tugi, hefir einnig einkent starf- semi þess á liðnu ári, svo að enn má segja, að betra hafi verið en hið næsta á undan. Má það vera okkur hið mesta gleðiefni, að svo skuli til hafa tekist jafn langan tima, því af því má ætla, að starf- semi félagsins sé svo gagnsýrð orðin af hugsjónum, drengskap og stórhug þeirra manna, er mörkuðu því starf og stefnu við endursköpun þess fyrir tuttugu árum, að framtíð þess sé trygð um ókomin ár. Mætti svo verða um alla ókomna tíð, þvi þar voru góðir og stórhuga menn að verki. Einn hinn mesti viðburður þessa árs í lifi félagsins, verður vafalaust talin ráðning enska at- vinnuleikarans, Mr. Joe Devine, sem þjálfara félagsins mánuðina aprílágúst. Hafði félagsstjórnin staðið i sambandi við knatt- spyrnuráð Englands, Danmerkur og Þýskalands um all-langt skeið og borist nokkur tilboð, er enska sambandið bauð okkur Mr. De- vine, en hann hafði leikið sem at- vinnuleikari í knattspyrnu (pro- fessional) um 15 ára skeið með nokkrum af bestu knattspyrnufé- lögum Englands. Þó að Mr. De- vine væri alldýr, og nokkuð dýr- ari en þjálfarar þeir, er okkur buðust frá liinum löndunum, þóttu kostir Mr. Devines umfram þá svo augljósir, að stjórnin sá sér ekki fært að ganga frá boð- iriu, enda yrði með ráðningu hans skorið úr, hve fullkomna þjálfara borgaði sig best að út- vega íslenskum knattspyrnu- mönnum. Má biklaust fullyrða, að Valur befir undir handleiðslu Mr. De- vine notið þeirrar bestu tilsagn- ar í þessum efnum, sem nokkru hérlendu félagi hefir enn hlotn- ast og á ábyggilega eftir að njóta hennar um mörg ókomin ár, þó kenslutíminn hafi verið langt ti' of stuttur. Bar einkum á því, hve hin taktiska kensla hans bar mik- inn árangur, þó eg fyrir mitt leyti telji hann ekki hafa valið meist- araflokki vorum þá taktik á Is- landsmótinu, sem best átti við undir kringumstæðunum. Ástæð- an finst mér hins vegar skiljan- leg, þar sem hon'um ókuhnugum virtist Valur hafa greinilega yfir- burði yfir hin félögin á vormót- inu, svo og í öllum aukaleikjum Vals (t. d. leiknum við Isl. Cor- inthians). Annar stórmerkur viðburður i sögu Vals er, án efa, kaup félags- ins á erfðafestulandinu Hliðar- endi, austast i Vatnsmýrinni, með tilheyrandi húsum og mannvirkj- um fyrir 30 þúsund krónur. Er ætlunin, að félagið eignist þar varanlegan samastað, þar sem all- ar þarfir þess um velli, leikfimi- ishús, skrifstofur og samkomu- sali verði uppfyltar eftir bestu erlendum fyrirmyndum og þörf- um og staðháttum okkar. Þar sem ætlunin er, að um kaup þessi og framtíðarrekstur þessarar eignar verði rituð ítarleg grein i einhver næslu blöð, verður þeirra ekki frekar getið að þessu sinni. Þá voru á árinu tvær knatt- spyrnuheimsóknir til okkar og ein utanför, þar sem Valur átti drýgstan þátt í, þótt farin væri með öðru félagi. Fyrri heimsóknin var af Isling- ton Corinthians, er hingað kom á vegum K.R. i tilefni af 40 ára af- mæli þess í vor. Fór K.R. þess á leit við Val, að hann tæki að sér að annast móttökurnar á móti því gegn hálfum ágóða eða hálfu tapi, ef svo bæri undir. Gerði Val- ur það. Kepti einn sjálfstæðan leik við þá og gerði jafntefli, 1:1, en lögðu til 6 menn i annað úr- valsliðið, sem kepti á móti þeim, en 5 í hitt. Ennfremur lánaði Val- ur K.R. einn mann og Víking ann- an, er þessi félög keptu við Eng- lendingana. Má af þessu marka, að Valur hefir af hinum félögun- um verið álitinn mjög sterkur, ef svo mætti að orði komast, enda var leikur hans við Isl. Corinthi- ans af mörgum talinn besti knatt- spyrnuleikur, er hér hefir sést. Seinni heimsóknin var af Tvör- oyrar Boltfelag frá Færeyjum, er kom hingað einnig á vegum K.R. Kepti Valur einn leik við Færey- ingana og vann þá með 5:0. Um utanför Vals og Vikings til Þýskalands er rituð sérstök grein i þetta blað, svo að ekki virðist ástæða til að minnast frekara á hana hér. Stjórn Vals 19381939.