77 mundsdóttir Guðbrandssonar. Þau giftu sig 1881. Bjuggu á Aðalbóli, þar til þau fluttu til Vesturbeims 1887 og tóku þetta land, er þau nefndu Framnes. Þau eignuðust sex sonu: 1. Bjarni; 2. Guðmundur: 3. Benedikt Valdimar; 4. Sigurður Ingvar — allra þeirra er getið í landnámsþáttum bygðarinnar — 5. Rósmon Árelíus, giftur Önnu dóttur Halldórs Aust- manns; 6. Jón Aðalsteinn. Allir eru þeir bræður at- hafnamenn hinir mestu og kappgjarnir. — Sigvaldi er látinn fyrir nokkuð mörgum árum. Hann þótti mætur maður, en hélt sér lítið fram, var jafnan stiltur og hægur í dagfari. Bn Margrét var bú- sýslukona mikil og þótti mjög að henni sópa. — Stóð bú þeirra hjóna í Pramnesi saman af miklum efnum. Benedikt Valdimar hefir tekið við föðurleifð sinni og býr nú í Pramnesi. Hann er dagfarshæg- ur og stiltur sem faðir hans. Hann hefir fjölhæfa og góða greind, er því í miklu áliti meðal sveitunga sinna. — Kona hans er María Ingibjörg, dóttir Ólafs og Sólrúnar á Gilsá (E.E. 2-23-3E.). Landnemi, Lot E.V. 22. Páll Jónsson. — Paðir hans var Jón bóndi á Álfgeirsvöllum í Skagafirði, Pálsson bónda á Heiði, Einarssonar, Torfasonar, Þorvarðssonar á Hvíta- nesi í BorgarfjarðarsÝslu. Móðir Einars Torfason- ar var Sæunn, dóttir Sigurðar lögsagnara á Knerri. Móðir Páls Jónssonar var Margrét Halldórsdóttir bónda á Kirkjubóli í Seiluhreppi í Skagafirði. — Kona Páls er Sigríður Lárusdóttir bónda á Steins- stöðum, Guðmundssonar bónda s. st. En móðr- hennar var Guðrún Ólafsdóttir bónda á Kjarna. Þau giftust 1879. Þá var Páll 32 ára, en Sigríður er 11 árum yngri. Til Vesturheims fluttu þau 1883, settust á landið sama ár, er þau nefndu Kjarna. Þau eiga þrjá sonu á lífi, sem allir ern dugandi búendur: 1. Þorgrímur Jónas; 2. Lárus;