bónda á Kjarna (Lot B.V. 22). Hann tók þetta land árið 1900. Kona hans er Guðrún, dóttir Helga Jakobssonar frá Sigmundarstöðum í Þverárhlíð, er hér verður getið. Þau giftu sig 1915. Börn þeirra eru: 1. Helgi; 2. Pálmi Sigurjón; 3. Haraldur; 4. Sigrún; 5. Ingibjörg; 6. Steingrímur. — Þorgrímur er atorkumaður, kappgjarn og ósérhlífinn, dreng- skaparmaður, glaðlyndur og skemtilegur. Bráð- greind eru þau hjcn bæði, fróð og minnug. Hjá þeim er auðvelt að halda uppi skemtilegu og upp- byggilegu samtali. Landnemi, N.E. 30. Sveinn Eyjólfsson. — Hann er sonur þeirra Eyjólfs og Þórönnu á Eyjólfsstöðum (Lot N.S. 27). Hann býr á landi því er hann keypti af Birni bróð- ur sínum (S.V. 16), sem áður er getið. Þetta land starfrækir hann til heyfanga. Landnemi, S.E. 31. Helgi Jakobsson. — Faðir hans var Jakob bóndi á Sigmundarstöðum í Þverárhlíð, Sæmunds- sonar bónda á Steinum í Stafholtstungum, Helga- sonar bónda á Steinum. Móðir Helga Jakobsson- ar var Guðrún Jónsdóttir. Hún var systir hins listhæfa og nafnkunna íþróttamanns, Helga i Neðra-Nesi í Stafholtstungum. — Kona Helga Ja- kobssonar er Ingibjörg Böðvarsdóttir bónda í Örn- ólfsdal, Jónssonar bónda í Brennu í Lunda-Reykja- dal. Móðir Ingibjargar var Ingibjörg, Pétursdóttir bónda í Norðtungu, Jónssonar bónda á Söndum, Sveinssonar bónda á Skarði í Neshreppi á Snæ- fellsnesi. En móðir hennar var Ingibjörg Einars- dóttir bónda í Kalmannstungu, Þórólfssonar. Móð- ir hennar var Kristín Jónsdóttir bónda í Kalmanns- tungu, Magnússonar bónda í Þingnesi, Nikulás- sonar. En móðir Kristínar var Ingibjörg Bjarna- dóttir bónda í Kalmannstungu, Þóroddssonar. Bróð- ir Bjarna í Kalmannstungu var Einar bóndi í Fljóts- tungu, faðir séra Halldórs í Vogsósum, föður bún-