27 það var gler og veikt sem vér völt eru ker í heimi." Margrét dó á Islandi. Seinna kona Jóns var Guðrún Sigurðardóttir ættuð úr Stéttuhlíðinni, hét móðir hennar Halldóra Björnsdóttir, kom hún vestur með dóttir sinni og dó hjá henni háöldruð. Greind kona og skörulee', raeðin og skemtileg. Hún dó í Glenboro í nóv. 1913. Jón var félagslyndur maður og tók mikinn þátt í félags- máluni. 1899 var pósthús stofnað í Hólabygðinni og var sett á heimili Jóns, var það nefnt Skálholt, var Jón kjörinn póstafgreiðslumaður, gegndi hann þeim starfa á meðan hann var í bygðinni og flutti hann einnig póstinn frá Glenboro vikulega öll þau ár. I skólaráði sat hann lengi og gengdi skrifara og féhirðis störfum. Hann komst fljótt niður í málinu og skrifaði enska tungu full- um fetum. Hann átti drjúgan játt í því að ísl. sam- komuhúsið í Glenboro var bygt, og að stofnun Glenboro safnaðar vann hann, og var öflugur styrktarmaður hans á meðan hans naut við. Jón var prýðilega vel skáld- maeltur, en fór dult með þá gáfu. Vel máli farinn var hann og talaði hann oft á mannfundum, hann var í öllu snyrtimaður, bar á sér snið mentaðra manna, var maður í hærra lagi, beinvaxinn og öldurmannlegur í sjón, karl- menni til burða og harðskeyttur. Sumarið 1920 dvaldi hann í Saskatoon hjá Sölva syni sínum þar. Kom.aftur til Glenboro og dó þar 2. júní 1925. Jón var kynsæll mað- ur, eru á lífi 15 börn hans. Af fyrra hjónabandi eru þessi : I.Sölvi, lyfjafræðingur, nú ráðsmaður fyrir lífs- ábirgðarfélag í Saskatoon, Sask. Kvæntur fiérlendri konu. 2. Margrét, gift hérlendum manni, býr í Bladworth, Sask. 3. Þorbjörg, gift hérlendum manni, á heima í Washing- ton ríkinu. 4. Jón Júlíus, giftur hérlendri konu býr í San Jose, Cal. 5. Benedikt, giftur Ágústu Jónsdóttir Helga- sonar bónda í Argylebygð. 6. Málfríður, gift Guðm. Stefánsyni, ættaður úr Skagafirði; þau búa í Winnipeg. 7. Kristín, gift J. M. Johnson í Prince Rupert, B. C. 8- Aðalheiður Rósa, merkiskona á Hrísum í Víðidal í Húnavatnssýslu; er fyrir nokkuru dáin. Af síðara hjóna- bandi eru þessi á lífi: 1. Hannes, bóndi í Hólabygðinni, giftur Jóhönnu Björnsdóttir Heiðman frá Ármótaseli.