35 frá Sköruvík á Langanesi og konu hans Guðrúnar Jóns- dóttir Olafssonar. Berglaug er fædd á Flögu í Þistilfirði 1854, ólst þar upp og á Langanesinu. Hún er ágætum mannkostum búin og er vel greind sem hún á kyn til. Tryggvi Ölafsson Berj;)aug Guömundsdóttir Tryggvi er mesti spektar - og geðprýðismaður.bókhneigð- ur með afbrigðum og fróður í ísl. bókmentum. Hefir hann verið einn af beztu stuðningsmönnum lestrarfélags- ins. Börn þeirra bjóna, sem á lífi eru: 1. Ölína, gift Kristjáni Sveinssyni. bóndaíHólab. 2. Abigael, gift Jóni Sigurðssyni í Winnipeg. 3. Soffia, gift Karl Eymundsson í Waterway, Alta. 4. Gunnar Jóhann, giftur Emily John- son frá Grand Forks, N. Dakota. Hefir Gunnar nú fyrir nokkru tekið við búi föður síns og er hann í hvívetna hinn mesti myndarmaður og vel látinn. Hann er skrifari skólahéraðs síns og situr í sveitarstjórn og gegnir öðrum trúnaðarstörfum mannfélags síns. Þrjú efnileg börn hafa þau Tryggvi og Berglaug mist í bygðinni og það verið þeim mikill harmur. Heimili þ^irra hjóna hefir ætíð verið mesta gestrisnisheimili og því oft verið