41 heilsuhælið heíir samið rit um vígi þau með ánni í námunda við Ó3a Souris-árinnar (Early Assiniboia Trading Posts of the Souris-Mouth Group 1 785 - I 832) og minnist hann þar á Pine Fort allgreinilega. Annar merkur Canadiskur saguritari, J. B. Tyrrell, kannaði vígisrústirnar með fram ánni 1890 og voru þá enn greinileg vegsummerki af Pine Fort og hefir hann skrifað um það ítarlega og þegar eg, sem þetta rita, kom á þessar stöðvar fyrst 1895 sáust glögg merki vígisins og merki þess aðþar hefðu verið mannabústaðir á löngu liðinni tíð. Á þessum stað bygði Sigríður Bjarnadóttir. Hún kom til þessa lands 1888 með Guðmund son sinn ungann. Fyrst var hún í Nyja ísl., síðar um tíma í Dak. I Nýja Isl. giftist hún Þorsteini Ásgrímssyni, en naut hans skamma stund, hann druknaði i Winnipegvatni haustið 1890 ásamt félaga súnum, Þórarni Jónssyni, bróðir Magnúsar frá Fjalli. Sigríður bjó um nokkur ár á landi sínu í Hólabygðinni með syni sínum Guðmundi, sem hér segir frá á öðrum stað. Seldi hún síðan landið, en ætið átt heima hjá honum. Sigríður er vel greind kona fróðleiksgjörn og mannkostum búin, sem hún á kyn til. Hún var eina konan sem land nam í Hólabygðinni og bjó sjálf á landeigninni. Hún er alsystir Guðbjargar Bjarnadóttir' konu Þorbergs Jónssonar. SIGURJÓN BJÖRNSSON, fæddur á Stórabakka í Tunguhrepp í N.-Múlas. Foreldrar hans voru Björn Sigurðsson og kona hans Guðrún Jónsdóttir. Sigurjón misti föður sinn þriggja ára og' móðir hans lét þá af búskap, Var hann þá tekinn í fóstur af Ölafi Sigurðs- syni og var hjá honum í þrjú ár. Næstu þrjú árin var hann hjá Magnúsi Sigurðssyni á Litlasteinssvaði í Hróarstungum, síðan eitt ár á Gilsárteigshjáleigu og upp frá því hjá móðurbróðir sínum, Rustikus Jónssyni á Nesi í Loðm.firði til tvítugsaldurs. Árið 1893 giftist hann Jónu Kristínu Jónsdóttir frá ísafirði, er hún systir Hinriks Jónssonar bónda við Ebor í Manitaba. Jóna er mikilhæf kona, sem hún á kyn til. Þau bjón byrjuðu búskap á Dallandi í Borgarfirði í N.-Múlas. og bjuggu þar í tíu ár. Fluttust til Ameríku 1903 og til Winnipeg og dvöldu þar